2. fundur 13. febrúar 2025 kl. 08:30 - 09:35 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Bjarki Eiríksson formaður
  • Hulda Gústafsdóttir varaformaður
  • Guðríður Ásta Tómasdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Ösp Viðarsdóttir embættismaður
  • Eggert Valur Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ösp Viðarsdóttir

1.Jarðarfarir - fánamál

2502027

Íbúaráð leggur til að flöggun íslenska fánans á stöngum sveitarfélagsins vegna jarðarfara verði á ábyrgð aðstandenda vegna jafnræðissjónarmiða. Lagt er til að fáni verði aðgengilegur í íþróttamiðstöðinni á Hellu þar sem aðstandendur geta nálgast hann vegna útfara í sveitarfélaginu.
Ráðið leggur áherslu á að þessi breyting verði kynnt vel á miðlum sveitarfélagsins. Einnig þarf að kynna þetta vel fyrir prestum, útfarastjórum og öðrum aðilum sem koma að jarðarförum.
Hingað til hefur þetta verið í umsjón starfsmanna þjónustumiðstöðvar en erfitt hefur verið að gæta jafnræðis þar sem sveitarfélagið er ekki alltaf látið vita af útförum á svæðinu.

2.Sorpmál - ábyrgð íbúa og vitundarvakning

2411062

Íbúaráð ítrekar óskir sínar um að fjölga grenndarstöðvum, t.a.m. í Þykkvabæ.
Íbúaráð leggur til að ráðist verði í kynningarátak og vitundarvakningu vegna sorpmála.
Íbúaráð leggur einnig til að flýtt verði fyrir því að skipta út maíspokum fyrir bréfpoka fyrir lífræna sorpið eins og þegar hefur verið ákveðið af hálfu Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Íbúaráð leggur til að skipulagður verði viðburður í kringum stóra plokkdaginn 27. apríl næstkomandi.

Fundi slitið - kl. 09:35.