Málsnúmer 1305001

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78. fundur - 05.02.2015

Samantekt og athugun á þörf á endurskoðun aðalskipulags eftir kosningar til sveitastjórnar 2014.
Skipulagsnefnd telur ekki nauðsynlegt að fram fari endurskoðun á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, þar sem það er mjög nýlegt og forsendur þess hafa ekki breyst í meginatriðum. Nokkur atriði þarfnast þó lagfæringa og leggur nefndin til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulaginu sem falli að forsendum í landsskipulagsstefnu ásamt þeim breytingum sem áformaðar voru í tengslum við útgáfu og samþykkt rammaskipulagsins fyrir Suðurhálendið. Varðandi áætlanir með svæðisskipulag fyrir svæðið er einnig nauðsynlegt að taka þær breytingar sem þar verða gerðar, inní áform um breytingar á aðalskipulaginu, sérstaklega sem snúa að orkuframleiðslu og vinnslu.

Skipulagsfulltrúa verði falið að senda tilkynningu til Skipulagsstofnunar skv. 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 86. fundur - 12.10.2015

Sveitarstjórn hefur ákveðið að láta fara fram endurskoðun á nokkrum þáttum í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Lögð fram verk- og kostnaðaráætlun.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi verk- og kostnaðaráætlun og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 90. fundur - 08.02.2016

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur ákveðið að ráðast í takmarkaða endurskoðun á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.
Lagt fram til kynningar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 91. fundur - 07.03.2016

Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson skipulagsráðgjafar stýra umræðum undir þessum lið.
Rangárþing ytra hefur samþykkt að ráðast í endurskoðun á gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Fyrir liggur að fara yfir þær áherslur sem tilheyra fyrirhuguðum breytingum.
Farið var yfir helstu liði og lögð fram drög að skipulagslýsingu. Helstu áherslur ræddar. Vinnufundur skipulagsnefndar áformaður 4. apríl nk. kl. 9.00.
Fulltrúar Steinsholts sf víkja af fundi.

Skipulags- og umferðarnefnd - 92. fundur - 11.04.2016

Gísli Gíslason ráðgjafi frá Steinsholti sf fer yfir áhersluatriði lýsingarinnar.
Endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022. Lögð fram lýsing skipulagsáætlunar.
Farið var yfir efni og áherslur lýsingarinnar. Gísli Gíslason ráðgjafi mun uppfæra lýsinguna í samræmi við umræður á fundinum. Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna og leggur til að hún verði kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gísli yfirgefur fundinn.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 26. fundur - 11.05.2016

Verk- og kostnaðaráætlun
Tillaga er um að staðfesta verk- og kostnaðaráætlun fyrir endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra og fela sveitarstjóra að óska eftir staðfestingu á kostnaðarþátttöku skipulagsstofnunar. Rétt er að taka fram að í áætluninni er gert ráð fyrir kaupum á skipulagsráðgjöf af Steinsholti sf að upphæð 9 m. króna. Þessi upphæð er hærri en viðmiðunarreglur sveitarfélagsins varðandi útboð kveða á um. Það er álit sveitarstjórnar að beita skuli undantekningarheimild innkaupareglna sveitarfélagsins í þessu tilfelli og af hagkvæmnisástæðum sé rétt að semja við Steinsholt sf um þennan verkþátt án undangengis útboðs.



Samþykkt samhljóða.

Skipulags- og umferðarnefnd - 94. fundur - 06.06.2016

Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson frá Steinsholti fara yfir áherslur við endurskoðun aðalskipulagsins.
Endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022. Lagðar fram athugasemdir við útsenda lýsingu. Farið yfir áhersrluatriði svo sem framsetningu aðalskipulagsins, tímaplan, þéttbýli og landnotkun.
Ýmsar áherslur ræddar. Næsti fundur áformaður þann 29. ágúst nk. kl. 9.00
Gísli og Ásgeir víkja af fundi og þeim þakkað fyrir góða yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 97. fundur - 29.08.2016

Ráðgjafarnir Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson frá Steinsholti sf sáu um yfirferð á áherslum.
Tekin verða fyrir eftirfarandi áherslur:
=
Íbúðabyggð í dreifbýli
=
Frístundabyggð
=
Aðrar byggingar/mannvirki í dreifbýli
Farið var yfir helstu áhersluatriði og breytingar frá núverandi greinargerð. Áformað var að halda íbúafund í lok september þar sem lýsing skipulagsáætlunar verður kynnt almenningi. Fundartími ákveðinn síðar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 98. fundur - 26.09.2016

Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson frá Steinsholti sf, ráðgjafar við endurskoðun aðalskipulagsins, fara yfir helstu atriði.
Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags eftir kosningar til sveitastjórnar 2014.

1. Lýsing skv. 30. gr. skipulagslaga (123/2010) ? sjá einnig gr. 4.2.2 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013

? Áherslur sv.stjórnar (kafli 4.1)

? Stefnumörkun í aðalskipulagi (kafli 4.2)

? Verkáætlun (kafli 8)

Í samræmi við kynningu lýsingar (gr. 4.2.4. í skip.reglugerð) þá skal taka lýsingu fyrir í sv.stjórn áður en hún er kynnt almenningi og send til Skipulagsstofnunar og umsagnaraðila.



2. Kaflar ? greinargerð. Förum í þetta eftir því sem tími vinnst til.

? Iðnaðarsvæði ? dreifbýli.

? Önnur byggð í dreifbýli ? stök mannvirki.

Farið var yfir helstu áhersluatriði og breytingar frá núverandi greinargerð. Nefndin telur nauðsynlegt að stefnumörkun vegna orkuvinnslu verði sett af stað og unnin í tengslum við endurskoðun aðalskipulagsins. Samþykkt var að kynna áhersluatriði skipulagsáforma á almennum kynningarfundi sem haldinn verður miðvikudaginn 28. september nk. hér á Hellu.

Næsti fundur er áformaður 17. október nk.
Ráðgjafar ljúka yfirferð sinni.

Skipulags- og umferðarnefnd - 100. fundur - 24.10.2016

Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra.

Tekin verða fyrir eftirtalin atriði:

1.
Rammaskipulag Suðurhálendis - upprifjun úr kafla 4, sérstaklega 4.1 og jafnvel einnig 4.2

2.
Verslun og þjónusta.

3.
Afþreyingar- og ferðamannasvæði.

4.
Stutt yfirferð yfir Skógræktar- og landgræðslusvæði,

5.
Fundaplan uppfært.

6.
Næsti fundur.
Farið var yfir helstu áhersluatriði. Fundaplan uppfært.

Skipulags- og umferðarnefnd - 102. fundur - 14.11.2016

Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Steinsholti ehf fara yfir helstu atriði sem þarfnast skoðunar.
Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags eftir kosningar til sveitastjórnar 2014.

Tekin verða fyrir eftirtalin atriði:



>>Landnotkun

o
Íbúðasvæði.

o
Athafna / iðnaðarsvæði.

o
Samfélagssvæði / miðsvæði.

o
Verslunar- og þjónustusvæði.

o
Afþreyingar og ferðamannasvæði

o
Opin svæði / Íþróttasvæði

Farið var yfir helstu atriði sem þarfnast endurskoðunar gagnvart landnotkun innan þéttbýlisins á Hellu.
Fulltrúar Steinsholts víkja af fundi og formaður þakkar þeim fyrir góða yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 103. fundur - 08.12.2016

Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson frá Steinsholti fóru yfir helstu atriði ásamt Birtu Kristínu Helgadóttur frá Eflu verkfræðistofu. .
Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags eftir kosningar til sveitastjórnar 2014.

Tekin verða fyrir eftirtalin atriði:

1.
Orkumál

2.
Samgöngumál

3. Ýmsar aðrar breytingar
Farið var yfir fjölmörg atriði. Sjá minnislista frá Steinsholti þess efnis.
Ráðgjöfum þökkuð góð yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 107. fundur - 20.02.2017

Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Steinsholti fóru yfir helstu atriði
Meðfylgjandi eru drög að ákveðum köflum greinargerðar og umhverfisskýrslu.
Kaflar um Samfélagsþjónustu og Íþróttasvæði breytast mjög lítið frá gildandi aðalskipulagi.
Kaflar um íbúðabyggð og frístundabyggð breytast lítið hvað varðar stefnumörkun utan þess að gert er ráð fyrir að lóðir minnki heldur.
Kafli um landbúnaðarland breytist heldur ekki mikið, utan þess sem vísað er í kafla um Stakar framkvæmdir en þar verður tekið á frístunda- og íbúðarhúsum í dreifbýli sem ekki tengjast búrekstri.
Tillaga að fundaplani lögð fram.
Farið var yfir helstu áhersluatriði. Fundaplan uppfært.
Ráðgjöfum þökkuð góð yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 109. fundur - 20.03.2017

Ráðgjafarnir Ásgeir, Fjóla og Ingibjörg frá Steinsholti kynntu áherslur sóinar og hugmyndir.
Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra.
Tekin verða fyrir eftirtalin atriði:
1.
Ferðamál - drög að ferðamálaskýrslu
2.
Afþreyingar- og ferðamannasvæði
3. Verslun- og þjónusta
4. Suðurlandsvegur umferðarmál
Farið yfir helstu áhersluatriði. Nákvæm framsetning í meðfylgjandi yfirliti.
Ráðgjöfum þakkað fyrir góða yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 111. fundur - 06.04.2017

Birta Kristín Helgadóttir frá Eflu, Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Steinsholti fara yfir helstu áherslur.
Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra.
Tekin verða fyrir eftirtalin atriði:
1.
Orkumál: orkuöflun - vindorka
2.
Vatnsverndarsvæði
3. Hverfisvernd
Farið var yfir helstu áhersluatriði. Minnisblað frá ráðgjöfum verður hluti fundargerðar.
Ráðgjöfum þakkað fyrir góða yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 112. fundur - 08.05.2017

Rangárþing ytra vinnur að endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Vart hefur orðið misræmis í afmörkun sveitarfélagamarka gagnvart aðliggjandi sveitarfélögum.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að leita samráðs við aðliggjandi sveitarfélög um lausnir.

Skipulags- og umferðarnefnd - 113. fundur - 11.05.2017

Ráðgjafar boðnir velkomnir. Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Steinsholti og Bárður Árnason frá Eflu sem fór yfir yfir áherslur varðandi umferðarmál.
Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra.
Tekin verða fyrir eftirtalin atriði:
1.
Sveitarfélagið umferðarmál
2. Kafli 4.3.10 Umhverfisskýrsla
3. Þéttbýlismörk á Hellu og í Þykkvabæ.
Fundargerð er í formi samantektar frá ráðgjöfum Steinsholts.
Ráðgjöfum þökkuð góð yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 115. fundur - 14.06.2017

Nokkur atriði sem þarf að lagfæra við endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra.
Tekin verða fyrir eftirtalin atriði:
1.
Hella umferðarmál
2. Umhverfisskýrsla
3. Greinargerð
4. Minnisblað frá Bárði
Farið yfir helstu áherslur. Fundargerð skráð sem minnislisti frá ráðgjöfum og fylgir með í skjalakerfi.

Skipulags- og umferðarnefnd - 117. fundur - 11.09.2017

Nokkur atriði sem þarf að yfirfara við endurskoðun aðalskipulags. Gögn send til yfirferðar.
Nefndin hefur farið yfir fram lögð gögn frá Steinsholti ehf. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að boða fulltrúa Vegagerðarinnar á fund til að ræða umferðarmál.

Skipulags- og umferðarnefnd - 118. fundur - 09.10.2017

Svanur Bjarnason og Valtýr Þórisson frá Vegagerðinni ásamt ráðgjöfunum Ásgeiri Jónssyni og Ingibjörgu Sveinsdóttur frá Steinsholti sitja afgreiðslu þessa máls.
Endurskoðun aðalskipulagsins. Umferðarmál tekin fyrir í samráði við Vegagerðina.
Farið var yfir ýmis áherslumál í tengslum við umferð og umferðarflæði. Minnislisti frá Steinsholti lagður fram á næsta fundi nefndarinnar.
Skipulagsfulltrúa verði falið að kalla saman hagsmunaaðila til fundar og samráðs um framtíðar áhersluatriði í samgöngumálum í samræmi við umræður á fundinum.
Nefndin leggur til að boðað verði til almenns íbúafundar um málefni og áherslur í endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins mánudaginn 13. nóvember og verði hann haldinn klukkan 20.00.
Gestum þakkað fyrir góða yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 120. fundur - 15.11.2017

Ráðgjafarnir Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Steinsholti fóru yfir helstu atriði.
Endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra. Tekin fyrir orku- og ferðamál ásamt öðrum áhersluatriðum.
Farið yfir ýmis áhersluatriði. Fundargerð í formi minnislista frá Steinsholti.
Ráðgjöfum þökkuð góð yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 121. fundur - 24.11.2017

Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Steinsholti ehf ráðgjöfum fara yfir helstu áhersluatriði.
Endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra. Framhaldsfundur frá síðasta fundi 15. nóvember sl.
Tekin fyrir orku- og ferðamál ásamt öðrum áhersluatriðum.
?
Stakar framkvæmdir
o
Frístundahús ? takmarkanir á uppbyggingu.
o
Orkuvinnsla ? vindmyllur.
o
Aðrar stakar framkvæmdir ? heimildir.
?
Afmörkun
o
Þéttbýlismörk ? Þykkvibær, Hella.
?
Samgöngur
o
Dreifbýli ? Gunnarsholt, Ægissíða (Árbæjar- og Þykkvabæjarvegur).
o
Hella ? vegur sunnan Suðurlandsvegar, vegtenging með flugvelli vestur að Helluvaði.
o
Vegtenging í Skjólkvíar.
o
Vegabætur á hálendi ? stofnvegir (hve mikið á að bæta þá), vegir að Hafrafelli og Skjólkvíum.
o
Reiðleið með Bjallavegi.
?
Hella
o
Móttökusvæði fyrir sorp
o
Afmörkun íbúðarsvæðis.
?
Hálendi
o
Landmannalaugar ? skilgreining sem versl. og þjónustusvæði og afþreyingar- og ferðamannasvæði.
o
Laufafell ? hætta við að setja inn sem afþr. og ferðamannasvæði.
o
Grashagi ? aðkoma að svæði eftir ánni?
o
Skjólkvíar / Rauðaskál ? fella út Rauðuskál, halda Skjólkvíum inni.
o
Þjónustumiðstöð við Hafrafell ? fellur utan hálendis.
?
Kynning - íbúafundur
o
Kynningartími tillögu - t.d. miðvikudagur 6. des kl. 16-19?
o
Uppsetning íbúafundar ? opið hús með uppdráttum á vegg og borðum. Stutt kynning á helstu breytingum kl. 17.00 ?
o
„Afgreiðsla“ aðalskipulags til staðfestingar sveitarstjórnar.
Farið yfir helstu áhersluatriði. Fundargerð í formi minnislista frá ráðgjöfum og undirritast á næsta fundi nefndarinnar.
Fulltrúar ráðgjafa yfirgefa fundinn og er þökkuð góð yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 122. fundur - 11.12.2017

Rangárþing ytra hefur unnið að endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Lýsing var kynnt frá 19.4.2017 til og með 28.4.2017. Tillaga er nú lögð fram til kynningar og umfjöllunar.
Skipulagsnefnd fór yfir framlögð gögn og samþykkir að haldinn verði íbúafundur þann 14. desember þar sem tillagan verði kynnt íbúum og almennum hagsmunaaðilum. Jafnframt verði tillagan send til eftirtalinna umsagnaraðila og kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga.

Skipulagsstofnun

Umhverfisstofnun

Vegagerðin

Veðurstofa Íslands

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands

Minjastofnun Íslands

Náttúrufræðistofnun Íslands

Fiskistofa

Ferðamálastofa

Aðliggjandi sveitarfélög: Rangárþing eystra, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Ásahreppur.

Skipulags- og umferðarnefnd - 123. fundur - 08.01.2018

Endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Opinn kynningarfundur var haldinn þann 14. desember. Mættu um 40-50 manns á fundinn. Lagður fram minnislisti frá fundinum og farið yfir athugasemdir og ábendingar sem fram komu á fundinum.
Skipulagsnefnd fjallaði um þær athugasemdir og ábendingar sem fram hafa komið í kynningarferli tillögunnar.
Skipulagsnefnd samþykkir því fyrirliggjandi tillögu með lítilsháttar lagfæringum sem fram komu á fundinum. Skipulagsfulltrúa ásamt ÞTJ og YKJ verði falið að koma þeim lagfæringum í greinargerðina. Nefndin leggur til
að tillagan verði kynnt skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að því loknu.

Skipulags- og umferðarnefnd - 124. fundur - 12.02.2018

Endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Lögð er fram tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 126. fundur - 09.04.2018

Endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Lögð er fram tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 eftir smávægilegar lagfæringar frá síðasta fundi.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til hún verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 1. fundur - 09.07.2018

Ráðgjafar sveitarfélagsins Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson frá Eflu sitja fyrir svörum og skýra þær áherslur sem komið hafa fram í endurskoðun aðalskipulagsins.
Endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins hefur verið send til afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Lögð er fram tillagan að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 til kynningar fyrir nýtt nefndarfólk ásamt tillögum að leiðréttingum vegna athugasemda og ábendinga frá Skipulagsstofnun.
Fjallað var um athugasemdir og ábendingar Skipulagsstofnunar ásamt því að farið var yfir ýmis áhersluatriði nýrrar nefndar. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.


Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson víkja af fundi. Formaður þakkar þeim góða yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 20.08.2018

Endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins hefur verið send til afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Athugasemdir og ábendingar hafa borist frá stofnuninni. Lögð er fram uppfærð tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem búið er að taka tillit til fram kominna ábendinga og athugasemda. Í bréfi Skipulagsstofnunar kom einnig fram að heimild sé til að auglýsa tillöguna.
Skipulagsnefnd fjallaði um fram komnar athugasemdir og ábendingar Skipulagsstofnunar og telur að búið sé að taka tillit til þeirra við gerð núverandi tillögu. Þar sem Skipulagsstofnun heimilar auglýsingu tillögunnar eftir að tekið hefur verið tillit til athugasemda stofnunarinnar samþykkir nefndin fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 3. fundur - 29.08.2018

Ásgeir Jónsson fór yfir fram komnar áherslur.
Endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins hefur verið send til afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Athugasemdir og ábendingar hafa borist frá stofnuninni. Lögð er fram uppfærð tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem búið er að taka tillit til fram kominna ábendinga og athugasemda. Í bréfi Skipulagsstofnunar kom einnig fram að heimild sé til að auglýsa tillöguna. Bætt hefur verið inn áherslum nýrrar skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd fjallaði um nýjar og eldri áherslur og telur að búið sé að taka tillit til athugasemda og ábendinga við gerð núverandi tillögu. Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Ásgeiri jónssyni þakkað fyrir góða yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 11.09.2018

Endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins hefur verið send til afgreiðslu Skipulagsstofnunar. Athugasemdir og ábendingar hafa borist frá stofnuninni. Lögð er fram uppfærð tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 þar sem búið er að taka tillit til fram kominna ábendinga og athugasemda. Í bréfi Skipulagsstofnunar kom einnig fram að heimild sé til að auglýsa tillöguna. Bætt hefur verið inn áherslum nýrrar skipulagsnefndar. Endanlegri afgreiðslu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar. Lögð er fram endanleg tillaga aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028.
Nefndin telur þær viðbætur sem bæst hafa við á síðari stigum ekki þess eðlis að um grundvallarbreytingar séu að ræða. Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028 og leggur til að hún verði send til umsagnar og auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnaraðilar eru tilgreindir í greinargerð tillögunnar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 8. fundur - 10.12.2018

Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Eflu fóru yfir áherslur í umfjöllun um athugasemdir.
Endurskoðun aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028. Tillaga hefur verið auglýst og bárust nokkrar athugasemdir. Allar athugasemdir lagðar fram til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um framkomnar athugasemdir og gert nauðsynlegar breytingar í greinargerð að teknu tilliti til athugasemda og ábendinga. Nefndin leggur því til að tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Gestum þökkuð góð yfirferð.

Skipulags- og umferðarnefnd - 11. fundur - 11.03.2019

Tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 var send Skipulagsstofnun 18.12.2019. Skipulagsstofnun óskaði eftir frekari gögnum og voru þau send stofnuninni 7.1.2019. Tilkynning um tafir á afgreiðslu stofnunarinnar var send með tölvupósti dags. 12.2.2019 og var ástæða tafa mikið verkefnaálag hjá stofnuninni. Önnur tilkynning um tafir á afgreiðslu barst með tölvupósti dags. 4.3.2019 þar sem ástæða tafa var sú að kallað hefði verið eftir umsögn Náttúrufræðistofnunar og Vegagerðarinnar vegna stefnu aðalskipulagsins hvað varðar færslu Landmannaleiðar/Dómadalsleiðar. Stofnunin mun afgreiða erindið þegar umræddar umsagnir liggja fyrir.
Lagt fram til kynningar.

Umhverfisnefnd - 3. fundur - 25.03.2019

Tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 var send Skipulagsstofnun 18.12.2019. Skipulagsstofnun óskaði eftir frekari gögnum og voru þau send stofnuninni 7.1.2019. Tilkynning um tafir á afgreiðslu stofnunarinnar var send með tölvupósti dags. 12.2.2019 og var ástæða tafa mikið verkefnaálag hjá stofnuninni. Önnur tilkynning um tafir á afgreiðslu barst með tölvupósti dags. 4.3.2019 þar sem ástæða tafa var sú að kallað hefði verið eftir umsögn Náttúrufræðistofnunar og Vegagerðarinnar vegna stefnu aðalskipulagsins hvað varðar færslu Landmannaleiðar/Dómadalsleiðar. Stofnunin mun afgreiða erindið þegar umræddar umsagnir liggja fyrir.
Lagt fram til kynningar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 13. fundur - 06.05.2019

Ráðgjafarnir Ásgeir Jónsson og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Eflu fara yfir fram komnar umsagnir.
Tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 var send Skipulagsstofnun 18.12.2018. Skipulagsstofnun óskaði eftir frekari gögnum og voru þau send stofnuninni 7.1.2019. Tilkynning um tafir á afgreiðslu stofnunarinnar var send með tölvupósti dags. 12.2.2019 og var ástæða tafa mikið verkefnaálag hjá stofnuninni. Önnur tilkynning um tafir á afgreiðslu barst með tölvupósti dags. 4.3.2019 þar sem ástæða tafa var sú að kallað hefði verið eftir umsögn Náttúrufræðistofnunar og Vegagerðarinnar vegna stefnu aðalskipulagsins hvað varðar færslu Landmannaleiðar/Dómadalsleiðar. Afgreiðsla stofnunarinnar barst með bréfi dags. 8.4.2019 þar sem gerðar eru athugasemdir og ábendingar sem þarfnast umfjöllunar.
Skipulagsnefnd fjallaði um allar framkomnar athugasemdir. Nefndin, með aðstoð ráðgjafa, tók saman lista yfir viðbrögð við athugasemdum. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að senda lagfærða tillögu til Skipulagsstofnunar eftir lagfæringu frá ráðgjöfum.
Ráðgjöfunum Ásgeiri og Ingibjörgu þökkuð góð yfirferð þegar þau yfirgefa fundinn.

Skipulags- og umferðarnefnd - 15. fundur - 08.07.2019

Tillaga að aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 var send Skipulagsstofnun til afgreiðslu eftir síðasta fund skipulagsnefndar. Í afgreiðslu stofnunarinnar kom fram að misræmi væri í tölum varðandi fjölda mögulegra gesta í Landmannalaugum. Stofnunin beinir því til sveitarfélagsins að felldur verði út fjöldi gistirúma á afþreyingar- og ferðaþjónustusvæði AF14 í dálkinum fjöldi gistiplássa heimild í töflu á bls. 23, eða að sett verði þar inn skýr ákvæði um að gisting í núverandi húsi FÍ sé víkjandi.
Skipulagsnefnd leggur til að tilteknar tölur í töflu á bls. 23 í greinargerð verði felldar út, svo jafnræði verði í fjölda gistirýma. Jafnframt verði gerður nýr liður í greinargerð 4.4.2 Breytingar eftir umsögn Skipulagsstofnunar dags. 25. júní 2019 og undir hann komi textinn "Í töflu um afþreyingar- og ferðamannasvæði, kafla 2.3.3, er felld út heimild fyrir gistingu 75 manns á AF14 í Landmannalaugum".
Skipulagsnefnd telur að með þessari leiðréttingu sé búið að koma til móts við allar fram komnar athugasemdir og ábendingar. Nefndin samþykkir endurskoðað aðalskipulag Rangárþings ytra 2016-2028 og leggur til að uppfærð gögn verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu.