Málsnúmer 1411001

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 75. fundur - 06.11.2014

Landsnet hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna umhverfismats fyrir Sprengisandslínu. Skýrslan er send til kynningar og upplýsingar.
Lagt fram til kynningar

Hreppsnefnd Rangárþings ytra - 6. fundur - 02.12.2014

Fundargerð frá 27.11.2014
  • Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 76 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Til kynningar.
  • Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 76 Skipulagsnefnd samþykkir leiðrétta greinargerð og telur að áform komi skýrt fram í henni. Tillagan verði því send Skipulagsstofnun til endanlegrar meðferðar. Bókun fundar Skipulagsnefnd samþykkir leiðrétta greinargerð og telur að áform komi skýrt fram í henni. Tillagan verði því send Skipulagsstofnun til endanlegrar meðferðar.










    Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða.
  • Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 76 Skipulagsnefnd leggur til að stofnuð skuli þjóðlendan Landmannaafréttur og taki hún það svæði sem Óbyggðanefnd hefur úrskurðað að tilheyri Landmannaafrétti. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að staðfesta þau mörk við Þjóðlendunefnd. Bókun fundar Skipulagsnefnd leggur til að stofnuð skuli þjóðlendan Landmannaafréttur og taki hún það svæði sem Óbyggðanefnd hefur úrskurðað að tilheyri Landmannaafrétti. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að staðfesta þau mörk við Þjóðlendunefnd.

    Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða.
  • Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 76 Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Farið verði um málsmeðferð eins og um nýtt deiliskipulag sé að ræða þar sem nefndin telur umræddar breytingar þess eðlis að kalli á endurupptöku skipulagsferils. Bókun fundar Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Farið verði um málsmeðferð eins og um nýtt deiliskipulag sé að ræða þar sem nefndin telur umræddar breytingar þess eðlis að kalli á endurupptöku skipulagsferils.








    Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða.
  • Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 76 Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði endurauglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipualgslaga nr. 123/2010. Nefndi telur að þar sem forsendur hafi ekki breyst frá því tillagan var auglýst í fyrra skiptið sé ekki ástæða til þess að leita að nýju eftir umsögnum. Bókun fundar Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði endurauglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipualgslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að þar sem forsendur hafi ekki breyst frá því tillagan var auglýst í fyrra skiptið sé ekki ástæða til þess að leita að nýju eftir umsögnum.


    Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða.
  • Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 76 Skipulagsnefnd leggur til að opnuð verði einstefnuleið frá Útskálum inná Laufskála. Jafnframt verði skipulag á bílastæðum við og á skólasvæðinu endurskoðað og merkingar fyrir umferð yfirfarnar. Bókun fundar Skipulagsnefnd leggur til að opnuð verði einstefnuleið frá Útskálum inná Laufskála. Jafnframt verði skipulag á bílastæðum við og á skólasvæðinu endurskoðað og merkingar fyrir umferð yfirfarnar.

    Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða.
  • Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 76 Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytinga á gildandi deiliskipulagi fyrir Litla-Klofa 6. Jafnframt leggur nefndin til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða. Því verði tillagan grenndarkynnt þeim lóðarhöfum sem aðkomu eiga að umræddum vegi að lóðinni Litli-Klofi 6. Bókun fundar Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytinga á gildandi deiliskipulagi fyrir Litla-Klofa 6. Jafnframt leggur nefndin til að farið verði um málsmeðferð eins og um óverulega breytingu sé að ræða. Því verði tillagan grenndarkynnt þeim lóðarhöfum sem aðkomu eiga að umræddum vegi að lóðinni Litli-Klofi 6.

    Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar samhljóða.

Samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 7. fundur - 04.11.2015

Fundinn sátu einnig undir þessum lið Gísli Gíslason og Ásgeir Jónsson Steinsholti, Ólafur Árnason EFLU, 2 fulltrúar frá Landsneti, Haraldur Birgir Haraldsson skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings ytra og Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi Ásahrepps.
Landsnet hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna umhverfismats fyrir Sprengisandslínu. Skýrslan er send til kynningar og upplýsingar.
Kynnt var matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum fyrir Sprengisandslínu.

Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 87. fundur - 09.11.2015

Landsnet hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna umhverfismats fyrir Sprengisandslínu. Skýrslan er lögð fram til umsagnar skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd leggur til að skilyrt verði að samhliða matsáætlun fyrir Sprengisandslínu, verði einnig lögð fram matsáætlun vegna umhverfismats um varanlega veglagningu um Sprengisand.

Skipulags- og umferðarnefnd - 90. fundur - 08.02.2016

Landsnet hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna umhverfismats fyrir Sprengisandslínu. Skipulagsstofnun óskaði eftir afstöðu sveitarstjórnar Rangárþings ytra um það hvort stofnunin geti tekið ákvörðun um hvort að ráðast eigi í sameiginlegt umhverfismat Sprengisandslínu með öðrum fyrirhuguðum framkvæmdum.
Skipulagsnefnd ítrekar fyrri umsögn sína vegna framlagðrar skýrslu frá Landsneti þar sem fram kemur að nefndin leggur til að skilyrt verði að samhliða matsáætlun fyrir Sprengisandslínu, verði einnig lögð fram matsáætlun vegna umhverfismats um varanlega veglagningu um Sprengisand.