Málsnúmer 1411084
Vakta málsnúmerFræðslunefnd - VINNUFUNDUR - 1. fundur - 08.01.2015
Drög að skólastefnu
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 4. fundur - 29.01.2015
Drög að skólastefnu
Lagt fram til kynningar, umfjöllun frestað til næstu funda í nefndinni.
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 6. fundur - 03.06.2015
Skólastefna fyrir Rangárþing ytra og Ásahrepp er til í drögum en unnið hefur verið að henni á undanförnum árum. Slíkt plagg er í eðli sínu lifandi og sífellt til endurskoðunar en mikilvægt er engu að síður að samþykkja þá stefnu sem nú er fylgt. Tillaga er um að fá Daníel Gunnarsson ráðgjafa til þess að vinna með fræðslunefnd að því að klára stefnuplaggið þannig að leggja megi það fyrir til formlegrar afgreiðslu fyrir næstu áramót. Formanni falið að ræða við Daníel og greina kostnað við að ljúka verkinu.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 7. fundur - 03.09.2015
Vinnulag við frágang skólastefnu
Tillaga fræðslunefndar er að Reynir Daníel Gunnarsson geri tillögu að skólastefnu fyrir Rangárþing ytra og Ásahrepp út frá fyrirliggjandi drögum að slíku plaggi og öðrum gögnum þannig að ganga megi frá henni fyrir áramót 2015-2016.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 8. fundur - 03.12.2015
Drög að skólastefnu
Reynir Daníel Gunnarsson kynnti tillögu að Skólastefnu Ásahrepps og Rangárþings ytra. Góð umræða varð um tillöguna og gerðar nokkrar tillögur til breytinga á orðalagi. Reyni Daníel Gunnarssyni falið að lagfæra stefnuna í samræmi við umræður á fundinum.
Skólastefnan, með breytingum, var síðan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Skólastefnan, með breytingum, var síðan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Oddi bs - 1. fundur - 11.01.2016
Útgáfa og kynning, lógó
Framkvæmdastjóra falið að gefa út skólastefnu sveitarfélaganna og dreifa á öll heimili í báðum sveitarfélögum.
Rætt um mikilvægi þess að hanna sérstakt merki (lógó) fyrir byggðasamlagið. Afgreiðslu frestað.
Rætt um mikilvægi þess að hanna sérstakt merki (lógó) fyrir byggðasamlagið. Afgreiðslu frestað.
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 9. fundur - 04.02.2016
Undirbúningur/útfærsla áætlunar skv. skólastefnu
Fjallað var um útfærslu áætlunar sbr. 3. gr. samþykkta Odda bs. og á grunni hinnar nýju skólastefnu. Atriði sem útfæra þarf í slíkri áætlun eru m.a. samræming og samstarf skólanna innan Odda bs. Tillaga um að formaður og skólastjórar myndi vinnuhóp til undirbúnings slíkri áætlun sem lögð verði fram í fræðslunefnd á næsta fundi.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.