Málsnúmer 1412027
Vakta málsnúmerHreppsnefnd Rangárþings ytra - 7. fundur - 16.12.2014
Íþróttahúsið á Hellu
Lagt fram til kynningar
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 9. fundur - 11.02.2015
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformaðar lóðabreytingar. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd fór yfir sameiginleg drög sveitarfélaganna Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Skaftárhrepps að umsögn og felur skipulagsfulltrúa og fulltrúum sveitarfélagsins þeim Þorgils Torfa Jónssyni og Yngva Karli Jónssyni að vinna áfram að umsögninni með skipulagsfulltrúum Skaftárhrepps og Rangárþings eystra og stefnt verði að því að tillaga að umsögn verði lögð fyrir sveitarstjórnir tiltekinna sveitarfélaga. Bókun fundar 3.3.1 Tillaga að umsögn um landskipulagsstefnu
Lögð fram sameiginleg tillaga að umsögn um landskipulagsstefnu með þátttöku Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Skaftárhrepps.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða umsögn -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd telur ekki nauðsynlegt að fram fari endurskoðun á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022, þar sem það er mjög nýlegt og forsendur þess hafa ekki breyst í meginatriðum. Nokkur atriði þarfnast þó lagfæringa og leggur nefndin til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á aðalskipulaginu sem falli að forsendum í landsskipulagsstefnu ásamt þeim breytingum sem áformaðar voru í tengslum við útgáfu og samþykkt rammaskipulagsins fyrir Suðurhálendið. Varðandi áætlanir með svæðisskipulag fyrir svæðið er einnig nauðsynlegt að taka þær breytingar sem þar verða gerðar, inní áform um breytingar á aðalskipulaginu, sérstaklega sem snúa að orkuframleiðslu og vinnslu.
Skipulagsfulltrúa verði falið að senda tilkynningu til Skipulagsstofnunar skv. 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd fór yfir stöðu málsins og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir viðbótarfresti til ráðuneytisins vegna rökstuðnings málsins. Afgreiðslu frestað. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd fór yfir stöðu málsins og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir viðbótarfresti til ráðuneytisins vegna rökstuðnings málsins. Afgreiðslu frestað. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsfulltrúi lagði fram tillögu að bréfi til viðkomandi aðila þar sem þeim er gert að fylgja ákvæðum gildandi deiliskipulags á svæðinu. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að senda bréf til viðkomandi aðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd telur að leita þurfi samþykkis nærliggjandi lóðarhafa vegna fjölgunar íbúða á lóðinni með tilheyrandi fjölgun á bílastæðum. Nefndin felur því skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið íbúum við Leikskála 1 og 4, Laufskála 1, Þrúðvang 22, 24 og 26 og Hólavang 1.
Jafnframt felur nefndin byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi ef jákvæð niðurstaða fæst með grenndarkynningunni. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Nefndin samþykkir áform umsækjanda þar sem heildarflatarmál bygginga er innan heildarbyggingarmagns skv. skipulagi. Nefndin felur því byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar
-
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Skipulagsnefnd telur að umrædd framkvæmd sé í samræmi við skipulagsáætlanir svæðisins. Fyrir liggur niðurstaða Skipulasstofnunar um hvort framkvæmdin sé háð mati á umhverfisáhrifum og var það mat stofnunarinnar að svo væri ekki.
Skipulagsnefnd telur að framlögð gögn lýsi vel framkvæmdinni á fullnægjandi hátt.
Skipulagsnefnd leggur því til að veitt verði framkvæmdaleyfi til Landsnets skv. fyrirliggjandi gögnum og að gjald fyrir leyfið skuli háð eftirliti sveitarfélagsins vegna skurðstæða, þverana og að frágangur sé í samræmi við áætlanir í umsókn framkvæmdaaðila. Bókun fundar Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar -
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 78 Lagt fram til kynningar og afgreiðslu frestað. Bókun fundar Lagt fram til kynningar