Málsnúmer 1501002
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 9. fundur - 11.02.2015
Vísað er til afgreiðslu á einstökum liðum en fundargerðin að öðru leyti staðfest
-
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 4 Farið yfir tillögur að breytingum og lagfæringum á erindisbréfi. Ákveðið að senda breyttu útgáfuna út til nefndarfólks til síðustu yfirferðar en senda síðan til sveitarstjórnanna til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Tillaga er um að samþykkja fyrirliggjandi erindisbréf fræðslunefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps. Í ljósi þess að hér er um sameiginlega nefnd tveggja sveitarfélaga að ræða þykir rétt að leita eftir áliti innanríkisráðuneytis á útfærslu erindisbréfsins.
Samþykkt samhljóða -
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 4 Ákveðið að leggja til að framlengja samninga um námsstyrki til starfsmanna Rangárþings ytra og Ásahrepps í leik- og grunnskólum vegna náms til kennsluréttinda stunda kennaranám með vinnu.
Ákveðið að leita eftir því við Fræðslunet Suðurlands að knýja á um að fyrirhugað námskeið fyrir ófaglærða starfsmenn leikskóla verði haldið. Formanni og leikskólastjórum falið að vinna að málinu.
Námskeið sem er í boði fyrir fræðslunefndir kynnt. Bókun fundar Lagt er til að reglur þessar gildi frá og með 1.1.2015 - 31.12.2018.
Samþykkt samhljóða með fyrirvara um að liður 3 í reglunum verði yfirlesinn með tilliti til vinnulöggjafar.