Málsnúmer 1501003
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 8. fundur - 14.01.2015
Þátttaka og tilnefning tengiliðs
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 9. fundur - 11.02.2015
Vísað er til afgreiðslu á einstökum liðum en fundargerðin að öðru leyti staðfest
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 7 Ákveðið að byggja á þeim og gera ráð fyrir að drög að forsendum fjárhagsáætlunar næsta árs verði tilbúin fyrir marslok.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Lagt fram til kynningar -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 7 Lögð fram gögn um fasteignir sveitarfélagsins. Sveitarstjóra falið að ganga frá tillögu að sölulista í samræmi við umræður á fundinum og jafnframt að leita eftir mati fasteignasala á viðkomandi eignum áður en tillagan verður lögð fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða
Bókun fundar Tillaga liggur fyrir um að eftirtaldar eigur verði hafðar á söluskrá:
Lóðir og lendur:
Allar skipulagðar frístundalóðir í eigu sveitarfélagsins
Byggingarlóðir (3) Tjarnarbakki, Tjarnarflöt og Tjarnarhús - Þykkvabæ
Landspildur (5) úr Norður-Nýjabæ og landspilda úr Skinnum - Þykkvabæ
Húseignir:
Suðurlandsvegur 1-3 - Hellu (eignarhlutur)
Þrúðvangur 36a - Hellu (eignarhlutur)
Breiðalda 7 - Hellu (sameign með Ásahrepp)
Fossalda 1 - Hellu (sameign með Ásahrepp)
Ein íbúð að Giljatanga - Laugalandi (sameign með Ásahrepp)
Samþykkt samhljóða og byggðaráði og sveitarstjóra falið að vinna áfram að verðmati á eignum og skipuleggja söluferli í samráði við fasteignasala. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 7 10.1 Málefni Félagsmiðstöðvar
Byggðarráð tekur undir þakkir til Ómars Diðrikssonar fyrir góð störf í þágu sveitarfélagsins á umliðnum árum og væntir sömuleiðis góðs af þeirri ráðstöfun að fá Guðmund Jónasson og Björk Grétarsdóttur til að hafa umsjón með Félagsmiðstöðinni Hellinum fram á vorið. Byggðarráð telur mikilvægt að nýta tímann í samstarfi við nýja umsjónarmenn til að endurskipuleggja starfsemina þannig að hún megi dafna áfram og nýtast ungmennum sveitarfélagsins til aukins félagsþroska og ánægju. Í vetur verði þannig mótaðar tillögur að mögulegum breytingum á starfseminni sem afstaða verði síðan tekin til fyrir næsta skólaár.
Samþykkt samhljóða
10.2 Skipulögð íþróttastarfsemi leikskólabarna
Sveitarstjóra falið að kanna hvort slík starfsemi geti rúmast innan samstarfssamninga við Íþrótta- og Ungmennafélögin.
Samþykkt samhljóða
Bókun fundar 1.3.1 Endurskoðað erindisbréf Íþrótta- og tómstundanefndar
Tillaga er um að staðfesta fyrirliggjandi erindisbréf fyrir Íþrótta- og tómstundanefnd
Samþykkt samhljóða
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 6. fundur - 17.03.2016
Óskað var eftir áframhaldandi samstarfi við önnur sveitarfélög í Rangárþingi og Mýrdal við gerð sameiginlegs þjónustukorts líkt og síðustu ár.
Sveitarstjórn hefur nú þegar samþykkt erindið. Markaðs- og kynnningarfulltrúa falið að vinna verkefnið.
Samþykkt samhljóða