Málsnúmer 1501011

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 8. fundur - 14.01.2015

Markaðssstofa Suðurlands óskar eftir framlengingu
Lagt til að fylgja fordæmi Árborgar sem er stærsta sveitarfélagið í þessu samstarfi og samþykkja framlengingu á samningnum til eins árs og 2,7% hækkun á framlagi pr. íbúa. Jafnframt verði óskað eftir að fulltrúar Markaðsstofunnar komi og kynni starfsemina og árangur hennar fyrir sveitarstjórn við fyrsta tækifæri. Kostnaður færist á kynningarmál (2153)



Samþykkt samhljóða

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 9. fundur - 11.02.2015

Vísað er til afgreiðslu á einstökum liðum en fundargerðin að öðru leyti staðfest

Samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 2. fundur - 13.04.2015

Fundargerð frá 30.01.2015
Fundargerðin lögð fram til kynningar

Byggðarráð Rangárþings ytra - 15. fundur - 28.10.2015

Meðfylgjandi er þjónustusamningur sem lýsir verkþáttum stofunnar
Lögð fram drög að samningi við Markaðsstofu Suðurlands. Tillaga um að vísa málinu til umsagnar hjá Atvinnu- og menningarmálanefnd.



Samþykkt samhljóða

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 5. fundur - 12.01.2016

Meðfylgjandi er þjónustusamningur sem lýsir verkþáttum stofunnar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að samningur við Markaðsstofu suðurlands verði endurnýjaður til tveggja ára og greiddar verði 430 kr á hvern íbúa ef það rúmast innan fjárhagsáætlunar. Það er hækkun úr 360 kr frá fyrri samningi.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 27. fundur - 12.11.2020

Ósk um endurnýjun samstarfsamnings.
Tillaga er um að fresta afgreiðslu málsins og óska eftir að framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands komi inn á fund sveitarstjórnar og kynni starfsemina.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 30. fundur - 26.11.2020

Gestur
Dagný Hulda Jóhannsdóttir kom inn á fundinn og kynnti starfemi Markaðsstofu Suðurlands og eru henni færðar bestu þakkir fyrir greinargóða kynningu.