Málsnúmer 1501020
Vakta málsnúmerOddi bs - 1. fundur - 11.01.2016
Samningur við HSU
Lagt fram til kynningar.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 2. fundur - 23.08.2018
Uppsögn HSU á þjónustusamningi við Rangárþing ytra um trúnaðarlæknis- og heilbrigðisþjónustu og ósk eftir viðræðum um gerð nýs samnings.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur sagt upp þjónustusamningi við sveitarfélagið um trúnaðarlæknis- og heilbrigðisþjónustu og óskar eftir viðræðum um gerð nýs samnings. Sveitarstjóra falið að ræða við HSU um framhald samningsins og leggja mat á reynsluna af samningum og leggja fram minnisblað á næsta fund byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 20. fundur - 12.03.2020
Uppsögn á þjónustusamningi.
Fyrir liggur bréf frá HSU þar sem þjónustusamningi um trúnaðarlækni og heilbrigðismál við sveitarfélagið er sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara og samningslok miðast við 31. maí 2020. Tillaga er um að fela sveitarstjóra að leita annarra leiða með þjónustu trúnaðarlæknis fyrir sveitarfélagið og leggja fram tillögur á næsta fundi sveitarstjórnar. Jafnframt er sveitarstjóra falið að óska eftir fundi með nýjum forstjóra HSU til að ræða heilsugæslumál í Rangárþingi almennt.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 22. fundur - 16.04.2020
Lögð fram til kynningar þau gögn sem fyrir liggja. Tillaga er um að miða í grunninn við þjónustu trúnaðarlæknis og fela byggðarráði að taka afstöðu til verðkönnunar þegar frekari gögn liggja fyrir.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 24. fundur - 28.05.2020
Verðkönnun
Lögð fram gögn vegna verðkönnunar um trúnaðarlæknisþjónustu. Lagt er til að ganga til samninga til eins árs við Heilsuvernd ehf. Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.