Málsnúmer 1501024

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 9. fundur - 26.03.2015

Erindi til Vegagerðar frá Rangárþingi ytra um hvort bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl megi nú fá til langþráðrar tengingar Rangárþings ytra innbyrðis.
Byggðarráð fagnar því að vegagerðin taki undir rök sveitarfélagsins um mikilvægi framkvæmdarinnar með tilliti til náttúruvár og almennrar umferðar á svæðinu. Byggðarráð telur einboðið að brúnni ásamt vegtengingu verði komið inn á næstu vegaáætlun.



Samþykkt samhljóða

Byggðarráð Rangárþings ytra - 27. fundur - 28.09.2016

Staða mála varðandi vegtengingu frá Odda að Bakkabæjum yfir Þverá.
Til kynningar.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 29. fundur - 12.10.2016

Samningur við vegagerðina um vegtengingu frá Odda að Bakkabæjum yfir Þverá.
Tillaga er um að sveitarstjóra verði falið að ganga frá fyrirliggjandi samningi við vegagerðina um vegtengingu frá Odda að Bakkabæjum yfir Þverá. Sveitarstjóra verði jafnframt falið að hefja undirbúning verksins í samvinnu við vegagerðina.



Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 31. fundur - 14.12.2016

Auglýst útboð 12.12.2016 - Niðurrekstrarstaurar fyrir brú á Þverá við Odda.
Lagt fram til kynningar.



Tillaga að bókun sveitarstjórnar:

Sveitarstjórn Rangárþings ytra lýsir yfir mikilli ánægju með að þetta mikilvæga samgönguverkefni, sem heimamenn hafa barist fyrir í áratugi, skuli nú loksins vera komið á framvæmdastig. Það er von og vilji sveitarstjórnar að verkið klárist sem fyrst þannig að að hægt verði að taka þessa miklu samgöngubót og öryggisleið sem fyrst í gagnið.



Samþykkt samhljóða.



Byggðarráð Rangárþings ytra - 31. fundur - 25.01.2017

Vegtenging frá Odda að Bakkabæjum yfir Þverá.
Til kynningar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 107. fundur - 20.02.2017

Vegtenging frá Odda að Bakkabæjum yfir Þverá. Framkvæmdaleyfi
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 hefur skipulagsnefnd Rangárþings ytra farið yfir áform og tilkynningu framkvæmdaraðila. Niðurstaða nefndarinnar er að framkvæmdin við veglagningu og brúun þverár við Odda sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Umsagnir vegna framkvæmdaleyfis liggja fyrir frá Kirkjuráði og Minjastofnun. Umsögn hefur ekki borist frá Fiskistofu. Jafnframt hafa áformin verið kynnt hagsmunaaðilum á svæðinu, svo sem veiðifélagi og landeigendum og liggja engar athugasemdir fyrir af þeirra hálfu. Framkvæmdin er í fullu samræmi við skilmála aðalskipulags sveitarfélagsins þar sem veglína er sýnd á uppdrætti og fjallað um veglagninguna í greinargerð. Skipulagsnefnd telur því ekki ástæðu til að grenndarkynna áformin og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi þegar umsögn hefur borist frá Fiskistofu og sveitarstjórn hefur lokið afgreiðslu sinni.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 37. fundur - 28.06.2017

Upplýsingar um framgang verkefnisins.
Lagt fram til kynningar.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 45. fundur - 14.02.2018

Samningur um áfanga II - uppsteypa sökkla og stöpla.
Tillaga er um að sveitarstjórn staðfesti samninginn.

Samþykkt samhljóða.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 4. fundur - 12.03.2019

Kynning á stöðu vega- og brúargerðar hjá Odda yfir Þverá.
ÁS fór yfir stöðu mála varðandi Oddabrú og veglagningu að Odda.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 33. fundur - 15.04.2021

Afhending vegtengingar um Oddabrú til Vegagerðarinnar
Lögð fram tillaga að bréfi til Vegagerðarinnar um afhendingu vegtengingar um Oddabrú í samræmi við samkomulag þar um.

Samþykkt samhljóða.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 8. fundur - 02.06.2021

Staða mála
Farið yfir stöðu vegaframkvæmda við Oddabrú. Vegagerðin er búin að bjóða út undibúningsvinnu fyrir burðarlag og lagningu slitlags. Vegurinn kemur nú inn á vegaskrá og er það fagnaðarefni. Verklok eru áætluð 1.okt 2021.