Málsnúmer 1501043

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 9. fundur - 11.02.2015

Lántaka í samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2015 til endurfjármögnunar hluta afborgana sveitarfélagsins á árinu 2015 hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Eftirfarandi tillaga var lögð fram:



Sveitarstjórn Rangárþings Ytra samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 50.000.000 kr. til 20 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna hluta afborgana sveitarfélagsins á árinu 2015 hjá Lánasjóði sveitarfélaga, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lántaka þessi í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2015. Jafnframt er Ágústi Sigurðssyni kt. 311064-4879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Rangárþings Ytra að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.



Samþykkt samhljóða

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 21. fundur - 10.02.2016

Til endurfjármögnunar hluta afborgana sveitarfélagsins á árinu 2016 hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Tillaga um að sveitarstjórn Rangárþings Ytra samþykki að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 50.000.000 kr. til 18 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna hluta afborgana sveitarfélagsins á árinu 2016 hjá Lánasjóði sveitarfélaga, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lántaka þessi í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2016. Jafnframt er Ágústi Sigurðssyni kt. 311064-4879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Rangárþings Ytra að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.



Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 32. fundur - 11.01.2017

Til endurfjármögnunar hluta afborgana sveitarfélagsins á árinu 2017 hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Tillaga er um að sveitarstjórn Rangárþings Ytra samþykki að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 50.000.000 kr. til 18 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna hluta afborgana sveitarfélagsins á árinu 2017 hjá Lánasjóði sveitarfélaga og til að fjármagna hluta af fjárfestingum við veituframkvæmdir sveitarfélagsins, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lántaka þessi er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2017. Jafnframt er Ágústi Sigurðssyni kt. 311064-4879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Rangárþings Ytra að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.



Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl: