Málsnúmer 1503048

Vakta málsnúmer

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 6. fundur - 13.03.2015

Fyrstu drög að áfangaskýrslu um útfærslu einstakra samstarfsverkefna Ásahrepps og Rangárþings ytra
Unnið í fyrstu drögum.

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 7. fundur - 23.03.2015

Drög II að áfangaskýrslu um útfærslu einstakra samstarfsverkefna Á og Ry
Málin rædd áfram

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 8. fundur - 27.03.2015

Fyrstu drög að áfangaskýrslu um útfærslu einstakra samstarfsverkefna Á og Ry
Unnið áfram í drögunum. Ákveðið að hittast á fundi n.k. mánudag 30.3 kl. 15:00 og stefna þá að því að ganga frá áfangaskýrslu til kynningar fyrir sveitarstjórnum. Rætt um mikilvægi þess að halda sameiginlegan opinn íbúafund sem fyrst þar sem málin yrðu kynnt og rædd.

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 9. fundur - 30.03.2015

Unnið í skýrslunni og málin rædd áfram. Ákveðið að óska eftir fundi með sveitarstjórnum sameiginlega sem allra fyrst eftir páska þannig að hægt sé að taka afstöðu um framhaldið á næsta sveitarstjórnarfundi beggja sveitarfélaga. Ákveðið að leggja til að haldinn verði sameiginlegur opinn íbúafundur laugardaginn 9 maí 11:00-14:00. ÁS falið að leita eftir því að Einar Sveinbjörnsson og Sesselja Árnadóttir frá KPMG geti verið á þeim fundi. Ákveðið að hittast næst þriðjudag 7.4 kl 9:00.

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 10. fundur - 07.04.2015

Unnið við skýrsludrögin. Ákveðið að leita eftir sameiginlegum fundi beggja sveitarstjórna mánudaginn 13 apríl nk. kl 15:00. Sveitarstjórum falið að hafa samband við sveitarstjórnarfólk. Á þessum fundi yrði áfangaskýrslan og staða mála hjá nefndinni kynnt. Næsti fundur viðræðunefndar ákveðinn fimmtudaginn 9 apríl nk kl 15:00.

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 11. fundur - 09.04.2015

Í drögum
Lokið við áfangaskýrslu sem verður nú kynnt sveitarstjórnum beggja sveitarfélaga ásamt neðangreindum tillögum:



Viðræðunefndin leggur til að haldinn verði sameiginlegur opinn íbúafundur þar sem fram færi kynning á vinnu viðræðunefndarinnar og umræður um útfærslu verkefna. Einnig gæfist þar kostur á að svara þeim spurningum sem helst brenna á íbúum varðandi framtíðarfyrirkomulag hinna sameiginlegu verkefna. Lagt er til að þessi fundur verði haldinn laugardaginn 9 maí n.k. kl 11:00-14:00 í Íþróttamiðstöðinni á Laugalandi. Auk fulltrúa úr viðræðunefndinni verði sérfræðingar KPMG á sviði endurskoðunar og sveitarstjórnarlaga með framsögu.



Jafnframt er lagt til að nefndinni verði falið að starfa áfram. Í næsta áfanga verði farið nákvæmar ofan í kostnað við mismunandi útfærslur auk frekari greininga (t.d. SVÓT). Jafnframt telur nefndin mikilvægt á þessum tímapunkti að kalla að verkinu sérstakan verkefnastjóra. Nefndinni verði falið að tilnefna verkefnisstjóra til verksins og leggja fram kostnaðaráætlun á næsta fundi sveitarstjórnanna. Niðurstöður þessa áfanga skulu liggja fyrir í lok júnímánaðar 2015.

Samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 2. fundur - 13.04.2015

Áfangaskýrsla I viðræðunefndar Ásahrepps og Rangárþings ytra
Áfangaskýrsla viðræðunefndarinnar lögð fram.



Viðræðunefndin leggur til að haldinn verði sameiginlegur opinn íbúafundur þar sem fram færi kynning á vinnu viðræðunefndarinnar og umræður um útfærslu verkefna. Einnig gæfist þar kostur á að svara þeim spurningum sem helst brenna á íbúum varðandi framtíðarfyrirkomulag hinna sameiginlegu verkefna. Lagt er til að þessi fundur verði haldinn laugardaginn 9 maí n.k. kl 11:00-14:00 í Íþróttamiðstöðinni á Laugalandi. Auk fulltrúa úr viðræðunefndinni verði sérfræðingar KPMG á sviði endurskoðunar og sveitarstjórnarlaga með framsögu.



Jafnframt er lagt til að nefndinni verði falið að starfa áfram. Í næsta áfanga verði farið nákvæmar ofan í kostnað við mismunandi útfærslur auk frekari greininga (t.d. SVÓT). Jafnframt telur nefndin mikilvægt á þessum tímapunkti að kalla að verkinu sérstakan verkefnastjóra. Nefndinni verði falið að tilnefna verkefnisstjóra til verksins og leggja fram kostnaðaráætlun fyrir sveitarstjórnirnar. Stefnt er að því að niðurstöður þessa áfanga liggi fyrir í lok júnímánaðar 2015.



Samráðsnefnd sveitarfélaganna samþykkir ofangreindar tillögur samhljóða.

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 22. fundur - 23.11.2015

Drög að Áfangaskýrslu II með viðaukum
Lagt fram til kynningar

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 24. fundur - 27.11.2015

Lokaútgáfa
Farið yfir tillögu að lokaútgáfu Áfangaskýrslu II.

Viðræðunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 25. fundur - 30.11.2015

Lokaútgáfa áfangaskýrslu II um útfærslu einstakra samstarfsverkefna Á og Ry
Farið yfir texta í formála Heildarskýrslu og hún undirrituð. Viðræðunefnd hefur þá skilað verkefninu af sér til umfjöllunar hjá samráðsnefnd og afgreiðslu hjá sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps.

Samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 8. fundur - 01.12.2015

Heildarskýrsla um útfærslu einstakra samstarfsverkefna Á og Ry
Lögð fram heildarskýrsla um endurskoðun og útfærslu einstakra samstarfsverkefna Ásahrepps og Rangárþings ytra. Kynntir helstu kaflar skýrslunnar og Auðunn Guðjónsson fór yfir kostnaðartölur og aðferðir við skiptingu kostnaðar milli sveitarfélaganna.



Ákveðið að vísa Heildarskýrslunni og tillögunum sem fram koma í henni til afgreiðslu í sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps.



Samþykkt samhljóða



Sveitarstjórum falið að bæta sameiginlegum eignalista við sem fylgiskjali 1 með samþykktum fyrir Húsakynni bs. áður en gögnin koma fyrir fundi sveitarstjórna þann 9. desember n.k.