Málsnúmer 1510076
Vakta málsnúmerHálendisnefnd - 1. fundur - 02.11.2015
Spurningar um mikilvægi fyrir ferðaþjónustu og mögulega stækkun
Hálendisnefnd - 2. fundur - 03.02.2016
Þorgils Torfi Jónsson, oddviti og fulltrúi í vinnuhópi um endurskoðun skilmála fyrir Friðland að Fjallabaki og Jón Björnsson sérfræðingur og landvörður hjá Umhverfisstofnun eru gestir fundarins undir þessum lið.
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp um málefni Friðlands að fjallabaki. Hugmyndin er að taka til endurskoðunar mörk svæðisins og friðlýsingarskilmála.
Þorgils Torfi skýrði frá stöðu mála í starfshópnum. Miklar og góðar umræður urðu um málefnið og nefndin telur sig vera vel upplýsta um stöðu málsins.
Þorgils Torfi Jónsson og Jón Björnsson víkja af fundi. Fundarmenn þakka fyrir þeirra sjónarmið.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 20. fundur - 23.03.2016
Skýrsludrög starfshóps til kynningar.
Skýrsludrög starfshópsins liggja nú fyrir og eru opin til skoðunar og athugasemda m.a. á heimasíðu sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og umferðarnefnd - 92. fundur - 11.04.2016
Umhverfisstofnun hefur birt drög að skýrslu starfshóps um endurskoðun friðlands að Fjallabaki. Skýrslan lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Það er álit nefndarinnar varðandi spurningu tvö að hún telur hugmyndir um stækkun friðlandsins vera afar óljósar og ekki tímabærar á þessu stigi. Ekki liggja fyrir neinar rannsóknir á afstöðu og þörfum hagsmunaaðila með stækkun friðlandsins í huga.
Nefndin óskar eftir frekari kynningu á þeirri vinnu sem fram hefur farið varðandi endurskoðun á friðlýsingarskilmálum fyrir friðlandið að Fjallabaki.