Málsnúmer 1512030
Vakta málsnúmerOddi bs - 1. fundur - 11.01.2016
Fundaáætlun, verkaskipting ofl.
Oddi bs - 4. fundur - 06.06.2016
Útfærsla á fræðslunefnd - hugmyndir til umræðu.
Samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna frá því í desember lýkur umboði fræðslunefndar á fyrra formi nú í júní. Tillaga er um að fyrirkomulag fræðslunefndar verði með þeim hætti að stjórn Odda og áheyrnarfulltrúar starfsmanna og foreldra myndi nefndina og fundir verði á fyrirfram ákveðnum dögum tvisvar á skólaári. Aukafundir verði síðan eftir þörfum.
Samþykkt samhljóða.
Ákveðið að undirbúa vinnufund stjórnar Odda þann 15 ágúst n.k. Næsti stjórnarfundur Odda bs er ráðgerður 27. júní n.k.
Samþykkt samhljóða.
Ákveðið að undirbúa vinnufund stjórnar Odda þann 15 ágúst n.k. Næsti stjórnarfundur Odda bs er ráðgerður 27. júní n.k.
Oddi bs - 7. fundur - 24.10.2016
Farið yfir vinnureglur stjórnar Odda hvað varðar fyrirkomulag funda með áheyrnarfulltrúum í fræðslumálum.
Farið var yfir þær vinnureglur sem settar hafa verið hvað varðar fundi hjá stjórn Odda bs. þar sem áheyrnarfulltrúar eru boðaðir sérstaklega.
Reiknað er með að stjórn Odda bs fundi sem hér segir fram til vors: 22/2, 21/3, 25/4, 23/5 og 27/6. Þá er áætlað að fræðslunefnd fundi 28/1 og 19/5.
1.2 Framkvæmdastjórn
Samkvæmt samþykktum Odda bs þá fer sveitarstjóri Rangárþings ytra með framkvæmdastjórn byggðasamlagsins. Stjórn Odda bs veitir framkvæmdastjóra fullt umboð til að samþykkja reikninga fyrir hönd byggðasamlagsins. Einnig er forstöðumönnum fræðslustofnana veitt umboð til að samþykkja reikninga eins og verið hefur.
1.3 Útfærsla á fræðslunefnd.
Útfæra þarf vinnulagið gagnvart næsta skólaári m.a. hvenær fundað er með áheyrnarfulltrúum. Ákveðið að fela framkvæmdastjóra að vinna tillögur og leggja fyrir stjórn.