Málsnúmer 1601023
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 9. fundur - 04.02.2016
Afrakstur vinnu starfshóps á vegum fræðslunefndar.
Oddi bs - 3. fundur - 21.03.2016
Framhaldsumræða um afrakstur vinnu starfshóps á vegum fræðslunefndar.
Tillaga er um að efna til átaks til eflingar leikskólastigsins. Aukinn kostnaður á árinu 2016 er áætlaður um 3 m. króna miðað við að kostnaður við átakið reiknist frá og með 1. september. Stjórn óskar eftir þessu aukaframlagi frá sveitarfélögunum fyrir árið 2016.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Oddi bs - 29. fundur - 08.09.2020
Nýtt fagnám í leikskólafræðum
Stjórn Odda bs lýsir yfir mikilli ánægju með hið nýja fagnám í leikskólafræðum skuli vera farið af stað. Lagt fram til kynningar.
Oddi bs - 36. fundur - 23.02.2021
Mat á árangri
Lögð fram samantekt um átakið sem sett var af stað haustið 2016 til að efla mannauð leikskólastigsins. Megináherslan var lögð á fjölgun fagmenntaðra með hvatningu og stuðningi til náms og bættum starfskjörum. Meðal annars voru samþykktar reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum og undirbúningstímum var fjölgað. Samþykkt var að átakið stæði til 1. júní 2021 og því er komið að því að meta hvernig til hefur tekist og ákveða með framhaldið. Á tímabilinu hafa alls 19 starfsmenn leikskólanna sótt um að nýta nemendastyrki um skemmri eða lengri tíma. Af þessum hafa 2 lokið B.Ed. námi og 2 M.Ed. námi og leikskólaliðarnir eru 3. Að því er best er vitað hafa 3 hætt en aðrir eru skráðir til náms og mislangt komnir. Hlutfall faglærðra sveiflast nokkuð eftir árum en hefur þó heldur hækkað yfir tímabílið. Þannig eru nú um 35% stöðugilda við leikskóla Odda bs mönnuð fólki með háskólapróf í leikskólakennarfræðum eða öðrum uppeldisfræðum. Þetta hlutfall var 15% árið 2017. Landsmeðaltal hefur lítið breyst yfir þetta tímabil og er um 46%.
ÁS falið að taka saman frekari gögn um málið og leggja fram á næsta fundi þannig að hægt sé að taka ákvörðun um áframhald verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
ÁS falið að taka saman frekari gögn um málið og leggja fram á næsta fundi þannig að hægt sé að taka ákvörðun um áframhald verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
Oddi bs - 37. fundur - 23.03.2021
Ákvörðun um framhald verkefnisins.
Reglur um styrki til nema í leikskólakennarafræðum á starfssvæði Odda bs renna út þann 1. júní 2021. Reglurnar hafa mælst vel fyrir og margir starfsmenn hafa nýtt þennan möguleika. Fjölgun hefur orðið í hópi fagmenntaðra á tímabilinu og eru þeir nú um 35% starfsmanna í samanburði við 15% árið 2017 en landsmeðaltali er þó ekki náð. Ekki er talin ástæða til að breyta reglum og lagt til að framlengja reglum um styrki til 1. júní 2026. Fjárhæðir eingreiðslna skv. 6. gr. reglnanna hækki úr 70.000 kr í 80.000 kr og 35.000 kr í 40.000 kr. Þá er lagt til að fjöldi undirbúningstíma fylgi þeim viðmiðum sem gefin eru í núverandi kjarasamningum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.