Málsnúmer 1601046

Vakta málsnúmer

Hálendisnefnd - 2. fundur - 03.02.2016

Jón Björnsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og Þorgils Torfi Jónsson oddviti sátu fundinn undir þessum lið.
Málefni akstursíþróttafélaga í tengslum við hálendið
Sigurgeir upplýsti nefndina um þær venjur sem tíðkast hafa við leyfisveitingar til rallýaksturs innan marka sveitarfélagsins undanfarin ár. Nefndin telur að skýrar verklagsreglur þurfi að liggja fyrir við afgreiðslu erinda sem þessara. Nefndin leggur til að samningar verði gerðir við keppnishaldara um afnot einstakra vega. Tryggja verður að hagsmunir sveitarfélagsins séu hafðir að leiðarljósi við gerð slíkra samninga og að keppnishaldara verði gert skylt að greiða fyrir eftirlit, frágang og lagfæringar ef með þarf. Nefndin leggur til að útbúnar verði verklagsreglur sem lagðar verði fyrir næsta fund.

Fulltrúar frá Rallý Reykjavík hafa óskað eftir fundi með nefndinni og tekur nefndin vel í það. Stefnt er að fundi um næstu mánaðarmót.





Fundarmenn þakka Torfa og Jóni fyrir þeirra sjónarmið.

Hálendisnefnd - 3. fundur - 26.05.2016

Fyrir liggur beiðni Rallý Reykjavík um að halda Rallýkeppni 25. ágúst 2016 á svæðinu austan og norðan við Heklu. Hálendisnefnd þarf að fjalla um þá vegi sem að sveitarfélaginu snúa. Það er Heklubraut eystri og aðkeyrslubrautirnar á Heklu í Skjólkvíum.
Nefndin samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum.

1. Forsvarsmenn keppninnar gæti þess að fylgt verði merktum leiðum og ekki sé ekið utan vega.

2. Keppnishaldari hafi fullt samráð við þá aðila sem hafa með skipulagðar ferðir á svæðinu að gera vegna keppninnar. Þá sérstaklega rekstraraðila í Landmannahelli, Áfangagili og að Hungurfitjum.

3. Mönnuð vöktun verði á öllum lokunarpóstum.

4. Þess sé gætt að allur frágangur verði til fyrirmyndar. Leiðir verði yfirfarðar að keppni lokinni og allar merkingar og rusl fjarlægt.