Málsnúmer 1605035
Vakta málsnúmerTónlistarskóli Rangæinga - 146. fundur - 15.06.2016
Skýrsla skólastjóra
Tónlistarskóli Rangæinga - 147. fundur - 06.10.2016
Skýrsla skólastjóra
Skólastjóri lagði fram yfirlit um starf skólans. Alls eru nemendur 305. Nemendur í einkanámi 150 - nemendur í forskóla í leikskóla 48. Nemendur á grunnstigi eru 86 á miðstigi 28 og í framhaldsstigi eru 4. Alls eru 9 stöðugildi tónlistarkennara. Í einkanámi eru 150. Einnig lagði skólastjóri fram endurmenntunaráætlun 2017. Hún ræddi fjarkennslu, rythmiskt nám o.m.fl.
Tónlistarskóli Rangæinga bs - 4. fundur - 03.10.2017
Skýrsla skólastjóra
Skólastjóri sagði frá blómlegu starfi skólans en nemendum hefur fjölgað úr 169 í 198 og er það 17% fjölgun milli ára. Viðburðir á afmælisári tókust vel. Samstarsverkefni Tónlistarskólans og Leikskólans á Laugalandi fer vel af stað. Þá er í gangi samstarf milli Harmonikkufélags Rangæinga og Tónlistarskólans sem þegar hefur skilað sér í mikilli fjölgun nemenda í harmonikkunámi. Fullorðnum nemendum skólans hefur fjölgað. Alls eru 18 kennarar við störf, í hlutastörfum 12 og 5 stundakennarar. Stöðugildin er 10,85 með skólastjóra og ritara. Aðstaða skólans hefur batnað á Hellu og Hvolsvelli en þrengst hefur um starfsemina á Laugalandi.
Tónlistarskóli Rangæinga bs - 24. fundur - 09.11.2021
Skólastjóri fer yfir nokkur atriði úr skólastarfinu.
Sandra Rún segir frá tónfundaröð sem farið var af stað með í haust, þar sem sérstakt þema væri á hverjum fundi. Skipulagið nær yfir allan veturinn þar sem einn fundur verður í hverjum mánuði. Í desember verða jólaþemavikur sem leggja áherslu á samspil. Kammerþemavika verður í febrúar og í vor verða skapandi vikur. Hugmynd um að reyna að dreifa heimsóknum til eldri borgara á hjúkrunarheimilin ef aðstæður leyfa, jafnvel samspil einu sinni í mánuði. Það er áberandi hversu mikill vilji nemenda er til að fá að spila fyrir aðra og nauðsynlegt að bregðast við því nú í kjölfar þess að lítið hefur verið hægt að sýna sig og sjá aðra.
Tónlistarskóli Rangæinga bs - 26. fundur - 03.05.2022
Skýrsla skólastjóra
Starf skólans hefur undanfarin ár verið litað af heimsfaraldri en góðu heilli hefur skólastarfið nú færst í eðlilegt horf. Þrátt fyrir að skólastarf hafi riðlast mikið þá eru ekki dæmi þess að nemendur hafi helst úr lestinni og horfið frá námi. Framundan eru samspilstónleikar, nemendatónleikar, áfangapróf og útskriftartónleikar og bjartir tímar. Starfsandi innan skólans er góður og útlit fyrir að vel muni ganga með ráðningu kennara fyrir næsta skólaár.
Kristín Jóhanna Dudziak Glúmsdóttir hefur verið ráðin til þess að kenna á blokkflautu í Suzukideild.
Stjórn Tónlistarskóla Rangæinga þakkar skólastjóra og kennurum skólans fyrir gott samstarf og metnaðarfullt starf.