Málsnúmer 1609058

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 99. fundur - 10.10.2016

Landeigendur óska eftir heimild til að leggja fram deiliskipulag af þremur lóðum undir frístundahús á jörð sinni, Hjallanesi 1 í Rangárþingi ytra. Tillaga er meðfylgjandi.
Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til deiliskipulagsgerðar. Nefndin telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulagsins og því sé ekki þörf á lýsingu. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 104. fundur - 12.12.2016

Landeigendur hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi af þremur lóðum undir frístundahús á jörð sinni, Hjallanesi 1 í Rangárþingi ytra. Tillagan var auglýst frá 20.10.2016 til og með 1.12.2016. Athugasemd barst frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands um skýrari afmörkun vatnsverndar umhverfis vatnsból á uppdrætti.
Skipulagsnefnd telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.

Skipulags- og umferðarnefnd - 116. fundur - 26.06.2017

Landeigendur hafa lagt fram deiliskipulag af þremur lóðum undir frístundahús á jörð sinni, Hjallanesi 1 í Rangárþingi ytra. Athugasemd barst frá Skipulagsstofnun vegna þyrlupalls.
Skipulagsnefnd staðfestir að þyrlupallur er ekki lengur hluti af deiliskipulagi. Nefndin telur að brugðist hafi verið við öllum fram komnum athugasemdum og samþykkir tillöguna til endanlegrar afgreiðslu skipulagsstofnunar.