Málsnúmer 1610004
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 99. fundur - 10.10.2016
ARKÍS hefur sent Skipulagsstofnun meðfylgjandi tilkynningu um áform Landborga til uppbyggingar hótels og gistireksturs í landi Heysholts, skv. 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Óskað er umsagnar Rangárþings ytra um hvort ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka í framangreindum lögum.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 28. fundur - 26.10.2016
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grein sé gerð fyrir framkvæmdinni í framlagðri greinargerð með tilkynningunni. Umhverfisáhrif hafa verið lágmörkuð með fullnægjandi mótvægisaðgerðum og vöktun.