Málsnúmer 1610026
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 29. fundur - 12.10.2016
Upplýsingabréf frá Innanríkisráðuneyti varðandi gerð viðauka við fjárhagsáætlanir.
Til kynningar.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 32. fundur - 11.01.2017
Tilmæli eru til sveitarstjórna að fara yfir form og efni viðauka sem gerðir eru.
Lagt fram bréf frá innanríkisráðuneyti til sveitarstjórna landsins þar sem reglur um gerð viðauka eru kynntar og óskað eftir því að fjallað sé um þær á vegum sveitarfélaganna. Þessar reglur hafa verið innleiddar hjá Rangárþingi ytra en gerð er tillaga um að sveitarstjóri kynni þær sérstaklega á forstöðumannafundi og sjái til þess að þær verði jafnframt kynntar í stjórnum þeirra byggðasamlaga þar sem Rangárþing ytra er þátttakandi.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 32. fundur - 22.02.2017
Umfjöllun um sérstakar verklagsreglur varðandi framkvæmd tilflutnings milli verkefna innan málaflokka.
Fjallað um gerð sérstakra verklagsreglna. Samþykkt að fela sveitarstjóra að undirbúa tillögu að slíkum reglum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.