Málsnúmer 1612012F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 33. fundur - 08.02.2017
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 31 Lagt fram minnisblað frá vinnufundi Byggðarráðs um áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar á umhverfið í húsnæðismálum Rangárþings ytra.
Byggðarráð leggur til að unnin verði húsnæðisáætlun fyrir sveitarfélagið og sveitarstjóra verði falið að skipuleggja og hefja þá vinnu. Í þeirri áætlun verði m.a. lagt mat á þörf fyrir leiguhúsnæði og greindar þær leiðir sem fara mætti til að svara þeirri eftirspurn. Jafnframt verði skoðað hvort hagkvæmt gæti verið að gera breytingar á húsnæðiseign sveitarfélagsins og með hvaða hætti má nýta þær leiðir sem boðaðar eru í nýrri löggjöf, m.a. um stofnframlög. Bókun fundar Lagt er til að unnið verði áfram í takt við tillögur byggðarráðs og stefnt að því að leggja fram húsnæðisáætlun fyrir sveitarfélagið á næsta fundi sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.