Málsnúmer 1612036

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 105. fundur - 09.01.2017

Byggingarfulltrúi hefur unnið að gerð reglna um staðsetningu og útlit skilta í sveitarfélaginu. Lögð eru fram drög að regluverki.
Skipulagsnefnd samþykkir framlögð drög að reglugerð og leggur til að sveitarstjórn staðfesti hana.

Skipulags- og umferðarnefnd - 41. fundur - 19.07.2021

Byggingarfulltrúi hefur unnið að gerð reglna um staðsetningu og útlit skilta í sveitarfélaginu. Lögð eru fram drög að skiltareglugerð.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins til næsta fundar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 3. fundur - 04.08.2022

Byggingarfulltrúi hefur unnið að gerð reglna um staðsetningu og útlit skilta í sveitarfélaginu. Lögð er fram tillaga að reglugerð um skilti fyrir Rangárþing ytra.
Skipulagsnefnd samþykkir fram lagða tillögu að reglugerð en telur rétt að leitað verði umsagna um hana hjá Vegagerðinni og Umhverfisstofnun áður en hún verði kynnt fyrir sveitarstjórn.

Skipulags- og umferðarnefnd - 9. fundur - 02.02.2023

Byggingarfulltrúi hefur unnið að gerð reglna um staðsetningu og útlit skilta í sveitarfélaginu. Beiðni um umsagnir voru sendar til Vegagerðarinnar og til Umhverfisstofnunar í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar. Lögð er fram umsögn Vegagerðarinnar en Umhverfisstofnun hefur ekki gefið umsögn enn.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að reglugerðin verði samþykkt og auglýsing verði birt í B-deild stjórnartíðinda svo hún öðlist gildistöku

Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 21.08.2025

Farið yfir áherslur í reglugerð um skilti.
Borið hefur á að skilti hafi verið sett upp í þéttbýlinu á Hellu án þess að sótt hafi verið um slíkt. Byggingarfulltrúa verði gert að bregðast við því.

Skipulags- og umferðarnefnd - 55. fundur - 21.11.2025

Stefán Short, nýr byggingarfulltrúi, fer yfir áherslur og viðbrögð
Farið yfir áherslur í reglugerð um skilti.
Farið var yfir áherslur í reglugerð sveitarfélagsins. Borið hefur á að sett séu upp skilti víða í sveitarfélaginu án leyfa og vill nefndin ítreka nauðsyn þess að brugðist verði við því hið allra fyrsta.
Stefán Short boðinn velkominn og þökkuð góð yfirferð