Málsnúmer 1701006

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 105. fundur - 09.01.2017

Valtýr Valtýsson óskar eftir að fá að deiliskipuleggja svæði úr jörð sinni Meiri-Tungu 1, landnr. 201366, undir 3 íbúðarhús ásamt gistiskála til ferðaþjónustu. Jafnframt er gert ráð fyrir því að nýuverandi íbúðarhúsi verði breytt í þjónustuhúsnæði tengdu ferðaþjónustu á jörðinni.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá lýsingu þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 108. fundur - 06.03.2017

Valtýr Valtýsson hefur lagt fram tillög að deiliskipulagi fyrir svæði úr jörð sinni Meiri-Tungu 1, landnr. 201366, undir 3 íbúðarhús ásamt gistiskála til ferðaþjónustu. Jafnframt er gert ráð fyrir því að nýuverandi íbúðarhúsi verði breytt í þjónustuhúsnæði tengdu ferðaþjónustu á jörðinni. Tillagan var auglýst frá 14.1.2017 til og með 2.3.2017. Athugasemd barst frá Vegagerðinni þar sem krafist er að lokað verði fyrir gegnumakstur milli gistihúss við Ásveg og hesthúss vestan við það.
Lögð er fram lagfærð tillaga þar sem búið er að taka tillit til athugasemda Vegagerðarinnar. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á að auglýsa tillöguna að nýju. Nefndin samþykkir því tillöguna og leggur til að hún verði send skipulagsstofnun til afgreiðslu þegar umsagnir hafa borist frá Umhverfisstofnun og Minjastofnun, en Minjastofnun hefur tilkynnt skipulsgsfulltrúa að vegna mikilla snjóalaga hafi ekki verið unnt að meta fyrirhugað framkvæmdasvæði.

Skipulags- og umferðarnefnd - 116. fundur - 26.06.2017

Valtýr Valtýsson hefur lagt fram deiliskipulag úr jörð sinni Meiri-Tungu 1, landnr. 201366, undir íbúðarhús ásamt gistiskála til ferðaþjónustu. Jafnframt er gert ráð fyrir því að nýverandi íbúðarhúsi verði breytt í þjónustuhúsnæði tengdu ferðaþjónustu á jörðinni.
Athugasemd barst frá Skipulagsstofnun vegna ákvæða um fjölda bygginga.
Skipulagsnefnd telur að ekki sé verið að auka við fjölda íbúðarhúsa á bújörðinni þar sem núverandi íbúðarhús verður fellt úr þeirri notkun og gert að þjónustuhúsi. Eitt nýju húsanna tekur því við hlutverki þess og þar með ættu fyrirliggjandi áform að samræmast skilmálum í aðalskipulagi sveitarfélagsins um fjölda bygginga á landbúnaðarjörðum.

Skipulags- og umferðarnefnd - 117. fundur - 11.09.2017

Valtýr Valtýsson hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði úr jörð sinni Meiri-Tungu 1, landnr. 201366, undir 3 íbúðarhús ásamt gistiskála til ferðaþjónustu. Jafnframt er gert ráð fyrir því að nýuverandi íbúðarhúsi verði breytt í þjónustuhúsnæði tengdu ferðaþjónustu á jörðinni. Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun þar sem ekki var fallist á að áformin samræmdust ákvæðum um byggingar á landbúnaðarsvæðum í aðalskipulagi.
Felldar voru út íbúðarlóðir til að koma til móts við athugasemdir stofnunarinnar. Skipulagsnefnd telur því að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Nefndin telur ekki þörf á frekari málsmeðferð.