Málsnúmer 1704013

Vakta málsnúmer

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 14. fundur - 11.04.2017

Kynning á vegaverkefni í Árnessýslu. Ólafur Kr. Guðmundsson verkefnisstjóri.
Ólafur Kr. Guðmundsson verkefnisstjóri hjá EuroRAP á Íslandi kynnti verklag við kortlagningu vegakerfis ákveðinna svæða á Íslandi. Meðal annars kynnti hann vinnu sína fyrir sveitarfélög í Árnessýslu og Ásahreppi. Samgöngu- og fjarskiptanefnd leggur til við sveitarstjórn að láta gera svipaða úttekt fyrir vegi í Rangárþingi og leita samstarfs við Rangárþing eystra um þátttöku í slíku.
Fylgiskjöl:

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 39. fundur - 13.09.2017

Yfirlit um ástand vega í Rangárþingi.
Tillaga er um að láta framkvæma vegaúttekt í sveitarfélaginu í samvinnu við nágranna í Rangárþingi eystra. Kostnaður við verkefnið er áætlaður um 250.000 kr m/vsk á hvort sveitarfélag. Kostnaður færist á Umferðar- og samgöngumál.


Samþykkt samhljóða.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 15. fundur - 14.09.2017

Vegaverkefni í Rangárþingi.
Sveitarstjórn hefur samþykkt tillögu samgöngu- og fjarskiptanefndar að láta framkvæma vegaúttekt í sveitarfélaginu í samvinnu við nágranna í Rangárþingi eystra. Farið var yfir lista þeirra vega í byggð sem verða teknir út nú á næstu dögum en í þessum áfanga eru það stofn- og tengivegir í byggð sem eru í fyrsta forgangi. Samgöngu- og fjarskiptanefnd leggur til að fjallvegirnir verði einnig teknir út í framhaldinu.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 16. fundur - 16.11.2017

Staða vegaverkefnis í Rangárþingi.
Staða málsins kynnt. Reiknað er með að skýrslan liggi fyrir á næsta fundi sem áætlaður er 17 janúar 2017 kl. 16:30.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 17. fundur - 17.01.2018

Kynning á stöðu vegaverkefnisins
Ólafur Guðmundsson er að vinna að verkefninu og mun ljúka því á næstu misserum. Stefnt er að því að Ólafur kynni verkefni á næsta fundi nefndarinnar.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 18. fundur - 04.04.2018

Ólafur Kr. Guðmundsson kynnir drög að skýrslu sinni.
Farið var yfir skýrsluna sem er að mestu á formi myndbanda og mynda af vegum í sveitarfélaginu. Mikilvægur þáttur í skýrslugerðinni er úttekt á einstökum vegum með tilliti til öryggis og slysatíðni. Sjónum er sérstaklega beint að atriðum eins og yfirborðsmerkingum, brotnum köntum í vegum, sprungumyndun í slitlagi, breidd vega og akreina, hámarkshraða og hlutfalli malarvega. Í kjölfar umræðna á fundinum var ákveðið að bæta nokkrum atriðum við skýrsluna áður en hún yrði gerð opinber en tillaga nefndarinnar er að blásið verði til opins íbúafundar sem fyrst um samgöngumál þar sem fulltrúar vegagerðar og samgöngumála verða einnig boðaðir.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 3. fundur - 06.02.2019

Úttekt Ólafs Guðmundssonar - næstu skref og tillögur til Vegagerðar.
Nefndin vann með niðurstöður úr vegaúttekt Ólafs Kr. Guðmundssonar og ábendingar sem þar koma fram. Það liggur fyrir að sérkenni á vegakerfi í Rangárþingi ytra er hlutfallslega mjög mikið af malarvegum en alls þarf að klæða um 80 km. Það er tillaga nefndarinnar að Landvegurinn verði skilgreindur sem stofnvegur og malbikun þeirra 13.5 km sem þar eru eftir, fylgi fjárhagsramma stofnvega. Þá er það tillaga nefndarinnar að lagt verði upp með að skipta klæðningu þeirra tengivega sem eftir eru upp í fjóra áfanga til næstu fjögurra ára. Um er að ræða Hagabraut(19,52 km), Rangárvallaveg (11,45 km), Þingskálveg (19,1 km) og síðan aðra styttri vegi þ.e. Árbæjarveg, Bjallaveg, Sumarliðabæjarveg og Bakkabæjaveg. Ekki er tekin afstaða til innbyrðis forgangsröðunar þessara fjögurra áfanga. Lagt er til að verkefnið verði lagt upp með þessum hætti við yfirvöld vegamála.

Samþykkt samhljóða.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 5. fundur - 20.08.2019

Eftirfylgni við úttektina.
Rætt var um hvernig skuli fylgja eftir þeirri vegaúttekt sem gerð var á síðasta ári fyrir allt sveitarfélagið. Hugmynd kom fram um að gera stutt myndband sem deila mætti á samfélagsmiðlum t.d. þar sem áhersla væri lögð á klæðningu 80 km af tengivegum innan sveitarfélagins. Markaðs- og kynningarfulltrúi sveitarfélagsins telur auðvelt að vinna slíkt upp úr þeim gögnum sem liggja fyrir úr vegaúttekinni. Stefnt er að því að kynna drög að slíku á næsta fundi nefndarinnar.

Samgöngu- og fjarskiptanefnd - 8. fundur - 02.06.2021

Viðhald og nýframkvæmdir við tengivegi í sveitarfélaginu
Vegagerðin hefur flýtt framkvæmdum við Rangárvallaveg og Oddaveg. Verður lagt slitlag á þessa vegi á árinu 2021. Lögð fram áætlun frá Vegagerðinni um fjármagn til tengivega. Hlutur vega í Rangárþingi ytra fram til ársins 2025 er 650 milljónir.