Málsnúmer 1804029

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 127. fundur - 07.05.2018

Oddur Hermannsson fyrir hönd Landamerkja efh sækir um heimild til skipulags á Geysisflötum. Ráðgert er að hefja starfsemi við tjaldsvæði og þjónustu skv. leigusamningi á lóð sem Rangárbakkar ehf hafa um árabil nýtt sem tjaldsvæði með rafmagnstenglum í tengslum við hestamót.
Skipulagsnefnd hafnar framkomnum hugmyndum þar sem um ákjósanlegt framtíðar uppbyggingarsvæði þéttbýlisins er að ræða.

Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 11.04.2022

Oddur Hermannsson fyrir hönd Landamerkja ehf sótti um heimild til skipulags á Geysisflötum með umsókn á árinu 2018. Tillagan gerði ráð fyrir starfsemi við tjaldsvæði og þjónustu skv. leigusamningi á lóð sveitarfélagsins. Erindinu var hafnað af sveitarstjórn af þeim sökum að svæðið sem tekið var undir þótti of stórt undir viðkomandi starfsemi. Lögð eru fram ný gögn málsins þar sem búið er að minnka athafnasvæðið.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022

Oddur Hermannsson fyrir hönd Landmerkja ehf hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðið á Geysisflötum. Tillagan gerir ráð fyrir starfsemi við tjaldsvæði og þjónustu skv. leigusamningi á lóð sveitarfélagsins. Skipulagsgögn frá Landform dags. 16.3.2022. Tillagan var auglýst frá 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.