Málsnúmer 1901059

Vakta málsnúmer

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 201. fundur - 31.01.2019

Viðskiptum hætt við Sorpu, samningar við Gámaþjónustuna.
Viðskiptum hætt við Sorpu, tímabundin samningur við Gámaþjónustuna.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 202. fundur - 26.03.2019

Staða mála.
Ágúst Sigurðsson fer yfir stöðu mála varðandi úrgangsmál í Rangárvallasýslu. Gámaþjónustan tekur við öllum úrgangi sem fluttur er frá Strönd. Sorpstöð Suðurlands hefur náð þríhliða samkomulagi við urðunarstaðina Fíflholt og Stekkjarvík um tímabundna urðunarþjónustu fyrir aðila að Sorpstöð Suðurlands fram til áramóta.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 210. fundur - 22.04.2020

Staða mála og neyðaráætlanir vegna COVID19
Lögð fram drög að neyðaráætlun Sorpstöðvar Suðurlands bs. um förgun úrgangs vegna COVID19. Í henni er lagt til að Strönd komi helst til greina sem neyðarurðunarstaður fyrir Suðurland ef aðrar leiðir lokast.
Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu skorast ekki undan ábyrgð á þessum tímum en bendir jafnframt á að urðunarstaðurinn við Kirkjuferjahjáleigu komi einnig til greina, enda stór og öflugur urðunarstaður með starfsleyfi í gildi og vel staðsettur m.v. magn úrgangs og vegalengdir.

Samþykkt samhljóða.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 212. fundur - 05.10.2020

Staða mála varðandi farveg úrgangs frá Strönd.
Stefán Gíslason hjá UMÍS Enviorence fór yfir erindi sem Sorpstöðin sendi Umhverfisstofnun í vor þar sem óskað var eftir undanþágu til urðunar á dýraleifum. Komið er svar frá Umhverfisstofnun þar sem starfsleyfi Sorpstöðvarinnar er breytt á þann hátt að tímabundin heimild er veitt vegna urðunar á lífrænum úrgangi þegar lagðar hafa verið fram viðeigandi tryggingar. Ábyrgðartrygging er þegar til staðar. Varðandi starfsleyfistryggingu er tillaga um eftirfarandi bókun:

Sorpstöð Rangárvallarsýslu bs. ábyrgist að staðið verði við þær skyldur sem settar eru fram varðandi frágang og vöktun urðunarstaðar sveitarfélaganna að Strönd (landnúmer L200488), sbr. 61. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Af hálfu Sorpstöðvar Rangárvallarsýslu bs. er litið svo á að yfirlýsing þessi jafngildi starfsleyfistryggingu, sbr. 59. gr. laga nr. 55/2003 og 17. gr. reglugerðar nr. 738/2003 um urðun úrgangs. Ábyrgð þessi gildir í 30 ár eftir lokun urðunarstaðarins.

Samþykkt samhljóða.

Fest hafa verið kaup á pressu til þess að auðvelda flutning á plasti og pappa. Átaki hefur verið hleypt af stað til að hvetja fólk til frekari flokkunar og hreinsunar á plasti en komið hefur upp að gámar frá Sorpstöðinni hafa verið verðfelldir hjá þjónustuaðila.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 221. fundur - 09.05.2022

Lagður fram samningur um afsetningu úrgangsefna fyrir árið 2022.
Í kjölfar verðkönnunar á afsetningu úrgangsefna var ákveðið að semja við Íslenska gámafélagið og gildir það samkomulag út árið 2022.