Málsnúmer 1901060

Vakta málsnúmer

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 201. fundur - 31.01.2019

Ráðning á nýjum starfsmanni skv. áætlun 2019
Ráðning á nýjum starfsmanni skv. áætlun 2019 auglýst á næstu vikum

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 202. fundur - 26.03.2019

Nýr starfsmaður hefur verið ráðinn.
Ágúst Sigurðsson fer yfir starfsmannamál á Strönd. Nýr starfsmaður hefur hafið störf. Stjórn býður starfsmann velkominn til starfa.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 218. fundur - 03.11.2021

Ákveðið að auglýsa eftir framkvæmdastjóra á Strönd í samræmi við starfslýsingu sem lá fyrir fundinum.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 219. fundur - 07.01.2022

Ráðning framkvæmdastjóra
Það bárust 9 umsóknir um starf framkvæmdastjóra Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Tekin voru viðtöl við þá umsækjendur sem uppfylltu þær lágmarkskröfur sem gerðar voru til starfsins. Formanni falið að ræða við þann umsækjanda sem metin er hæfastur og bjóða honum starfið.

Samþykkt samhljóða.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 223. fundur - 29.08.2022

Tímabundin ráðning til áramóta. Samstarf Sorpstöðvarinnar, Vinnumálastofnunar og Viss vinnu- og hæfingarstöð.
Framkvæmdastjóra kynnti tilraunaverkefni í samstarfi við Viss vinnu- og hæfingarstöð.
Stjórn lýsir yfir ánægju með verkefnið. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.