Málsnúmer 1903041
Vakta málsnúmerUmhverfisnefnd - 3. fundur - 25.03.2019
Anna Vilborg Einarsdóttir og Guðbjörg Erlingsdóttir leggja fram tillögur að hafin verði vinna við gerð umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið. Lögð fram drög til frekari vinnslu.
Lagt fram til kynningar. Unnið verður áfram að málinu fram að næsta fundi.
Umhverfisnefnd - 4. fundur - 12.08.2019
Umhverfisnefnd Rangárþings ytra hefur hafið vinnu við gerð umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið.
Lagt fram til kynningar.
Umhverfisnefnd - 6. fundur - 27.05.2020
Umhverfisnefnd Rangárþings ytra hefur hafið vinnu við gerð umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið.
Farið var yfir áherslur sem mættu koma fram í umhverfisstefnu sveitarfélagsins.
Umhverfisnefnd - 10. fundur - 28.06.2021
Umhverfisnefnd Rangárþings ytra hefur hafið vinnu við gerð umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið. Farið yfir helstu áherslur
Umhverfisnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki fram lagða umhverfisstefnu.
Umhverfisnefnd - 1. fundur - 07.03.2023
Lögð eru fram drög að umhverfisstefnu Rangárþings ytra til yfirferðar.
Umhverfisnefnd fór yfir drög að umhverfisstefnu sem unnin var af umhverfisnefnd á síðasta kjörtímabili og lögð fyrir sveitarstjórn á fundi 12. ágúst 2021. Stefnan var hinsvegar ekki staðfest, heldur var fundargerð nefndarinnar lögð fram til kynningar. Margt er gott í þessum drögum að umhverfisstefnu, en umhverfisnefnd er sammála um að taka drögin til endurskoðunar.
Umhverfisnefnd - 2. fundur - 15.03.2023
Lögð eru fram drög að umhverfisstefnu Rangárþings ytra til yfirferðar.
Unnið var í sameiginlegu skjali um umhverfisstefnu sem nefndin hefur öll skrifaðgang að. Þar koma fram helstu þættir umhverfisstefnu og hugmyndir að tímasettum áætlunum o.þ.h. Sem grunn leggur umhverfisnefnd til að umhverfisstefna verði hin "allt-um-lykjandi" stefna og undir hana falli stefna um aukna fræðslu í umhverfismálum, auðlindastefna og loftslagsstefna. Sú síðast nefnda er lögboðin og hefur SASS hafið undirbúning að því að veita sveitarfélögum á Suðurlandi aðstoð við gerð hennar.
Rætt var almennt um umhverfisstefnu, loftslagsstefnu og auðlindastefnu sveitarfélaga. Allt eru þetta stefnur sem vísa veginn til framtíðar um hvernig við sem samfélag viljum umgangast auðlindir okkar og umhverfi og hvernig við getum minnkað neikvæð áhrif rekstrar sveitarfélagsins á það. Þetta eru því grundvallarstefnur sveitarfélagsins og þar sem þær eru ekki til í dag ber að vanda sérstaklega til þeirra. Eftir umræður á fundinum er ljóst að stefnur sem þessar verða ekki unnar af starfsfólki sveitarfélagsins og nefndarfólki eingöngu og leggur því nefndin til við sveitarstjórn að leitað verði tilboða frá þar til bærum fyrirtækjum eða einstaklingum sem gætu leitt vinnu af þessu tagi í samstarfi við sveitarfélagið.
Til þess að umhverfisnefnd sé vel upplýst um hvernig fræðslu í umhverfismálum er háttað, mun Haraldur Birgir Haraldsson, f.h. nefndarinnar, óska eftir minnisblaði frá skóla- og leikskólastjórum sveitarfélagsins um hvernig umhverfisfræðslu er háttað í þeirra skólum og hugmyndum þeirra um hvernig auka megi við hana og gera markvissari. Einnig verði óskað eftir hugmyndum frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins ásamt framkvæmdastjóra Sorpstöðvar Rangárvallasýslu um þörf á almenningsfræðslu í tengslum við sorpmál.

Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 5. fundur - 30.10.2023
Lögð eru fram drög að umhverfisstefnu Rangárþings ytra til yfirferðar.
Rifjuð upp umræða um gerð umhverfisstefnu fyrir Rangárþing ytra. Unnið er jafnframt að gerð loftslagsstefnu í samstarfi við SASS sem verði síðar hluti af umhverfisstefnu sveitarfélagsins.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 7. fundur - 15.01.2024
Farið yfir stöðu vinnu við umhverfisstefnu Rangárþings ytra ásamt loftslagsstefnu og auðlindastefnu.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd leggur til að um gerð tveggja stefna verði að ræða, annars vegar umhverfis- og loftslagsstefnu og hins vegar auðlindastefnu. Nefndin leggur til að staða vinnunnar við gerð umhverfis- og loftslagsstefnunnar verði lögð fram á næsta fundi nefndarinnar.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 8. fundur - 05.02.2024
Jón Ragnar Örlygsson fer yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðu vinnu við umhverfisstefnu Rangárþings ytra ásamt loftslagsstefnu.
Fyrirliggjandi vinna lögð fram til kynningar
Jóni Ragnari þökkuð góð yfirferð
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 9. fundur - 04.03.2024
Farið yfir stöðu vinnu við umhverfisstefnu Rangárþings ytra
Umhverfis- hálendis- og samgöngunefndin telur að best sé að vinna að heildarstefnu með því að fjalla um ákveðin markmið hverju sinni. Fyrir næsta fund verði aðgreining á markmiðum og leiðum að markmiðum gerð skýrari.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 10. fundur - 06.05.2024
Farið yfir stöðu vinnu við umhverfisstefnu Rangárþings ytra
Lögð fram drög að umhverfisstefnu. Stefnt er að því að ljúka gerð hennar á næsta fundi.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 11. fundur - 03.06.2024
Farið yfir stöðu vinnu við umhverfisstefnu Rangárþings ytra
Umhverfis,- hálendis- og samgöngunefnd Rangárþings ytra hefur farið yfir drög að Umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið. Stefnan fer í lokarýningu hjá nefndarfólki og stefnt er að lokaskilum á næsta fundi nefndarinnar.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 12. fundur - 07.10.2024
Farið yfir stöðu vinnu við umhverfisstefnu Rangárþings ytra en nefndarfólk er með drögin til endanlegrar skoðunar.
Umhverfis,- hálendis- og samgöngunefnd hefur farið yfir framlagða umhverfisstefnu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt. Nefndin vill benda á nauðsyn þess að stefnunni verði fylgt eftir með aðgerðaráætlun í samræmi við innihald stefnunnar.