Málsnúmer 1904010

Vakta málsnúmer

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 206. fundur - 17.09.2019

Stöðutaka og stefnumörkun
Stöðutaka og stefnumörkun. Beðið er eftir svari frá Rangárþing eystra.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 207. fundur - 13.11.2019

Staða mála
Lagt fram tölvuskeyti frá hreppsnefnd Ásahrepps varðandi aukna þjónustu á grenndarstöð við Meiri-Tungu. Í ljósi þess að ekki hefur verið tekin ákvörðun um rekstrarfyrirkomulag grenndarstöðva er afgreiðslu málsins frestað.
Svar frá Rangárþingi eystra varðandi þetta mál hefur ekki borist.
Rætt var um mönnun á grenndarstöðvum meðan á vorhreinsun stendur. Nauðsynlegt er að framtíðar skipulag varðandi grenndarstöðvar liggi fyrir um áramót. Samhliða því þarf að endurskoða þjónustustig, opnunartíma o.fl. Huldu og Ómari falið að taka saman gögn um heimsóknir á Strönd eftir árstímum og vikudögum.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 208. fundur - 19.12.2019

Rædd fyrirhuguð breyting á grenndarstöðvum Sorpstöðvarinnar. Huldu Karlsdóttur, Antoni Kára Halldórssyni og Ómari Sigurðssyni falið að fara yfir mögulegar útfærslur. Einnig er þeim falið að koma með tillögur að opnunartíma á Strönd. Leggja skal tillögurnar fyrir næsta fund.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 209. fundur - 22.01.2020

Lagt fram minnisblað um grenndarstöðvar og niðurstöður könnunar um opnunartíma á Strönd
Ýmsar útfærslur á grenndarstöðvum ræddar. Ákveðið að vinna að samræmingu grenndarstöðvanna þriggja á Hellu, Hvolsvelli og við Meiri-Tungu í samstarfi við sveitarfélögin.
Gerð var skoðanakönnun um opnunartíma á Strönd á fésbókarsíðu Sorpstöðvarinnar, og var þátttakan góð. Jafnfram var kannað hvernig opnnartíma er háttað hjá öðrum sveitarfélögum á landinu. Við tillögugerð var tekið mið af þeim upplýsingum sem söfnuðust. Lögð fram tillaga að breyttum opnunartíma á Strönd. Nýr opnunartími tekur gildi 1. mars 2020. Opnunartíminn verður eftirfarandi: apr-sept, mán-fös. kl. 13:30-18 og á lau kl. 10-16, okt-mar, mán-fim. kl. 13:30-17, fös. kl. 13:30-16 og lau kl. 11-15. Lokað verður á sunnudögum. Tillagan borin upp og samþykkt samhljóða.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 210. fundur - 22.04.2020

Breytt fyrirkomulag á grenndarstöðinni á Hvolsvelli hefur gengið ágætlega en þó ekki hnökralaust. Huldu ásamt kynningarfulltrúum falið að kynna þetta fyrirkomulag fyrir fyrirtækjum og rekstraraðilum á svæðinu.

Ákveðið að hafa vorhreinsun í ár með svipuðu sniði og undanfarin ár. Huldu og Ómari falið að undirbúa og kynna málið.

Almennt hefur sorphirða og móttaka sorps á Strönd gengið framar vonum þrátt fyrir COVID faraldur og erfitt veðurfar. Mikið hefur mætt á starfsmönnum Sorpstöðvarinnar og hafa þeir staðið sig með mikilli prýði.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 212. fundur - 05.10.2020

Staða mála á grenndarstöðvum
Síðastliðnir mánuðir hafa verið annasamir á móttökustöðinni á Strönd og að sama skapi mikið um að vera á grenndarstöðvum og í árlegri sumarhreinsun í sumar. Nauðsynlegt er að koma upp myndavélum á grenndarstöðvum hið fyrsta og er sú vinna í undirbúningi. Þá er í bígerð að girða af grenndarstöðvarnar á Hvolsvelli og Hellu og hafa þar gönguhlið líkt og við grenndarstöðina í Meiri-Tungu.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 216. fundur - 13.04.2021

Sumarhreinsun - fyrirkomulag
Farið yfir fyrirkomulag á árlegri sumarhreinsun. Ákveðið að fela Huldu og Ómari að undirbúa og kynna málið og senda stjórn til staðfestingar fyrir lok vikunnar. Verið er að setja upp eftirlitsmyndavélar á grenndarstöðvar og á Strönd. Búið er að breyta innmötun í gámana á grenndarstöðum og hefur flokkun og umgengni batnað mikið.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 218. fundur - 03.11.2021

Lagt fram minnisblað um breyttan opnunartíma á Strönd
Lögð fram tillaga að breyttum opnunartíma. Frá og með 1. apríl 2022 verði opið alla virka daga frá kl. 13-17. Á laugardögum frá kl. 11-15. Frá apríl til september verði lengri opnunartími á laugardögum frá kl. 10-16 og einn dag í viku n.t.t. á miðvikudögum til kl. 18:30. Við tillögugerð var tekið mið af skráðum komum á Strönd og opnunartíma hjá nágranna sveitarfélögum. Samþykkt samhljóða.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 223. fundur - 29.08.2022

Möguleikar á bættri starfsmannaaðstöðu á Strönd.
Möguleikar á móttöku fleiri úrgangsflokka á grenndarstöðvum.
Móttaka fyrir Endurvinnsluna.
Framkvæmdastjóra falið að vinna áfram að úrlausn að bættri flokkun á grenndarstöðvum með tilliti til nýrra laga sem taka gildi 1. janúar 2023. Jafnframt að ræða við Endurvinnsluna um mögulega móttöku á dósum og gleri.
Framkvæmdastjóra falið að leggja fram tillögu um útfærslu á bættri starfsmannaaðstöðu og áætlaðan framkvæmdakostnað fyrir næsta fund.