Málsnúmer 1907069

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 14. fundur - 25.07.2019

Endurskoðun á reglum um heimgreiðslur.
Lagðar fram endurskoðaðar reglur um heimgreiðslur og þær samþykktar samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 22. fundur - 26.03.2020

Endurskoðun fyrirkomulags sbr. bókun við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2020.
Lagt fram yfirlit um heimgreiðslur en núverandi reglur gilda til 31. júlí n.k. Endurskoðun reglna frestað til næsta fundar byggðarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 23. fundur - 30.04.2020

Endurskoðun reglna.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 24. fundur - 28.05.2020

Tillaga um að núverandi reglur um heimgreiðslur gildi til 31. júlí 2021. Sveitarstjóra falið að uppfæra reglurnar í samræmi við þetta og m.t.t. til nýrra reglna um fæðingarorlof og leggja fram á næsta fundi sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 9. fundur - 25.01.2023

Reglur og fjárhæð heimgreiðslna.
Lagðar fram reglur um heimgreiðslur.

Lagt til að að upphæð heimgreiðslna hækki árlega til samræmis við hækkun neysluvísitölu.

Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að uppfæra reglur um heimgreiðslur og leggja fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
Fylgiskjöl:

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 11. fundur - 08.02.2023

Breytingar á reglum um heimgreiðslur.
Lagðar fram breytingar á reglum um heimgreiðslur í Rangárþingi ytra til barna á aldrinum 12-24 mánaða sem ekki sækja leikskóla sveitarfélagsins. Lagt til að heimgreiðslur hækki í kr. 87.000 frá og með 1. mars nk. og þær greiðslur taki verðlagsbreytingum árlega eftir það og miðist við áramót.

Samþykkt samhljóða.