Málsnúmer 1910045

Vakta málsnúmer

Húsakynni bs - 8. fundur - 10.03.2020

Útboð vegna bílaplans
Tómas Haukur Tómasson kynnti tilboðsgögn vegna fyrirhugaðrar framkvæmar við bílaplan á Laugalandi. Fyrirhugaður framkvæmdatími er maí-júlí 2020. Tillaga er um að fara í verðkönnun meðal verktaka í Rangárþingi ytra og Ásahreppi nú í mars með skiladag þann 3. apríl n.k og fela THT að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

Húsakynni bs - 9. fundur - 27.03.2020

Útfærsla áætlunar í ljósi COVID19
Tillaga borin upp um að fresta dagsetningum útboðs á bílaplani á Lauglandi fram yfir páska. Stefnt er að því að stjórn Húsakynna fundi þriðjudaginn 14. apríl kl. 8:30

Samþykkt samhljóða.

Húsakynni bs - 10. fundur - 14.04.2020

Útfærsla áætlunar vegna COVID19, útboð á bílaplani.
Farið yfir áætlaða framkvæmd við bílaplan á Laugalandi en fyrirhugaður framkvæmdatími er maí-júlí 2020. Tillaga er um að fara í verðkönnun meðal verktaka í Rangárþingi ytra og Ásahreppi með skiladag þann 4. maí n.k og fela THT að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

Húsakynni bs - 11. fundur - 08.06.2020

Bílaplan ofl. THT fer yfir stöðu mála.
THT greindi frá því að engin tilboð bárust í verðkönnun um bílaplanið á Laugalandi þrátt fyrir að gefinn væri aukinn tilboðsfrestur og verktími rýmkaður. Rætt um að skipta verkinu upp og semja beint við verktaka um einstaka verkþætti. THT falið að vinna málið áfram með það að markmiði að ljúka verkinu innan ársins sé þess nokkur kostur. Haft verði samráð við skólastjórnendur varðandi útfærslu á framkvæmdatíma.

Samþykkt samhljóða.

Einnig komu fram upplýsingar um að líklega sé ekki um að ræða frekara sig á íþróttagólfi en stefnt er að því að undirbúa endurbætur á gólfinu á næsta ári.

Húsakynni bs - 12. fundur - 01.09.2020

Farið yfir stöðu framkvæmda og kostnaðar við bílaplan.


THT fór yfir stöðu framkvæmda við bílaplan. Búið er að jarðvegsskipta, malbika og steypa kantsteina. Hellulögn fer af stað á næstu dögum. Umfang verksins á þessu ári svo sem frágangur verður minnkaður samanber bókun í dagskrárlið 2. Þess má einnig geta að verkefnið er innan áætlunar.
Kostnaði við lokafrágang verði vísað til vinnu við fjárhagsáætlun 2021.

Samþykkt samhljóða.

Húsakynni bs - 13. fundur - 09.11.2020

Staða mála
Búið er að malbika plan steypa kantsteina og leggja hellur á svæðið næst skóla og leikskóla og að skólastjórabústað. Lögð verður áhersla á að helluleggja einnig stæði fyrir hreyfihamlaða ásamt svæðinu frá skólastjórabústað að gangbraut við sleppistæði.