Málsnúmer 2004007

Vakta málsnúmer

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 9. fundur - 08.04.2020

Á síðasta fundi þann 25. febrúar var rætt að auglýsa eftir aðila til að halda úti upplýsingamiðstöð. Ákveða þarf hvað skuli gera í ljósi aðstæðna.
Nefndin leggur til að sú ákvörðun haldist óbreytt og að auglýst verði eftir aðila til að halda úti upplýsingamiðstöð í sveitarfélaginu. Markaðs- og kynningarfulltrúa er falið að útbúa auglýsingu.

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 10. fundur - 28.05.2020

Markaðs- og kynningarfulltrúi segir frá stöðu mála varðandi umsóknir upplýsingamiðstöðvar.
Viðbrögð hafa verið lítil og mun markaðs- og kynningarfulltrúi halda áfram að auglýsa eftir áhugasömum aðilum.

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 11. fundur - 24.06.2020

Markaðs- og kynningarfulltrúa hefur borist póstur frá aðila sem hefur lýst yfir áhuga á að vera með upplýsingamiðstöð í sveitarfélaginu.
Nefndin fór yfir umsóknina og leggur til að meðfylgjandi drög að samningi verði samþykkt. Nefndin vísar málinu til afgreiðslu Byggðarráðs.

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 12. fundur - 02.07.2020

Farið yfir stöðuna á upplýsingamiðstöð í sveitarfélaginu.
Nefndin fór yfir tillögur Lopasjoppunnar og niðurstaðan var sú að halda samningum óbreyttum en samþykkja breytingar á orðalagi skv. tillögum Lopasjoppunnar í drögum. Nefndin hefur ekki fjárheimild fyrir árið 2021 og getur því ekki samið til lengri tíma en ársloka 2020. Markaðs- og kynningarfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir.