Málsnúmer 2007003
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 28. fundur - 20.07.2020
Hákon Ásgeirsson fyrir hönd Umhverfisstofnunar óskar eftir að gildandi deiliskipulag fyrir Landmannahelli verði endurskoðað í samráði við og með aðkomu sveitarfélagsins. Nýjar áherslur hafa komið fram um stjórnun og verndun friðlandsins með tilkomu gerð stjórnunar- og verndaráætlunar sem er í vinnslu og unnin er í samvinnu við sveitarfélagið. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyirr tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar.
Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir Landmannahelli. Þar sem óskir hafa komið fram frá fleiri aðilum á svæðinu um breytingar skuli kallað eftir samvinnu annarra rekstraraðila á svæðinu og gerð heildarbreyting.
Skipulags- og umferðarnefnd - 42. fundur - 06.09.2021
Haraldur Eiríksson tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Umhverfisstofnun í samráði með hagsmuna- og rekstraraðilum í Landmannahelli hefur fengið heimild sveitarfélagsins til að gera nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Helstu breytingar eru þær að óbyggðar lóðir eru felldar út, lóðamörkum einstakra lóða breytt, bætt við möguleikum á byggingu þjónustuhúsa og gert ráð fyrir tjaldsvæðum bæði á efra svæðinu og á bökkum Helliskvíslar. Uppdráttur og greinargerð frá Eflu dags. 21.6.2021 lögð fram.
Skipulagsnefnd getur ekki fallist á að fella burt óbyggðar lóðir af svæðinu. Nefndin hafnar því erindi umsækjenda.
Skipulags- og umferðarnefnd - 43. fundur - 11.10.2021
Haraldur Eiríksson vék af fundi eftir að gerð var athugasemd við setu hans. Sævar Jónsson vék af fundi.
Umhverfisstofnun í samráði með hagsmuna- og rekstraraðilum í Landmannahelli leggur fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Helstu breytingar eru þær að óbyggðar lóðir verði felldar út, lóðamörkum einstakra lóða breytt, bætt við möguleikum á byggingu þjónustuhúsa og gert ráð fyrir tjaldsvæðum bæði á efra svæðinu og á bökkum Helliskvíslar. Skipulagsnefnd féllst ekki á að felldar yrðu út tvær lóðir úr fyrra skipulagi og hafnaði því erindi umsækjenda. Sveitarstjórn staðfesti niðurstöðu nefndarinnar. Samráðsfundur var haldinn með aðilum og málin reifuð. Lögð er fram greinargerð Umhverfisstofnunar þar sem gerð er frekari grein fyrir áherslum málsins.
Skipulagsnefnd telur ekki forsvaranlegt að lóðir verði felldar út úr skipulagi og aðrar stækkaðar og byggingarmagn frekar aukið. Nefndin telur að ekki hafi verið viðhaft nægilegt samráð við sveitarfélagið við gerð núverandi tillögu. Nefndin leggur því til að skipaðir verði fulltrúar frá sveitarfélaginu til frekara samráðs um tillöguna. Nefndin frestar erindinu.
Bókun fulltrúa Á-lista:
Undirrituð finna að því að formaður skipulags- og umferðarnefndar sitji fundinn undir umræðum þessa máls þar sem undirrituð telja hann vera hagsmunaaðila að málinu.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Yngvi Harðarson
Bókun fulltrúa Á-lista:
Undirrituð finna að því að formaður skipulags- og umferðarnefndar sitji fundinn undir umræðum þessa máls þar sem undirrituð telja hann vera hagsmunaaðila að málinu.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Yngvi Harðarson
Haraldur Eiríksson kom aftur á fundinn.
Skipulags- og umferðarnefnd - 48. fundur - 07.03.2022
Haraldur Eiríksson víkur af fundi
Umhverfisstofnun í samráði með hagsmuna- og rekstraraðilum í Landmannahelli hefur lagt fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Helstu breytingar eru þær að óbyggðar lóðir verði felldar út, lóðamörkum einstakra lóða breytt, bætt við möguleikum á byggingu þjónustuhúsa og gert ráð fyrir tjaldsvæðum bæði á efra svæðinu og á bökkum Helliskvíslar. Sveitarstjórn frestaði afgreiðslu og óskaði eftir að fulltrúar skipulagsnefndar myndu funda með fulltrúa Umhverfisstofnunar um framgang málsins. Lögð er fram greinargerð frá þeim fundi. Samhliða óskar Umhverfisstofnun eftir að sveitarfélagið yfirtaki gerð tillögunnar að deiliskipulagi svæðisins frá því sem komið er og búið er að kynna.
Skipulagsnefnd áréttar að eingöngu eru gerðar athugasemdir við að lóðir séu felldar út af núverandi skipulagi. Nefndin gerir engar athugasemdir við aðrar fyrirhugaðar breytingar í tillögunni. Nefndin leggur til að sveitarstjórn taki við gerð deiliskipulagsins að ósk Umhverfisstofnunar og leggur til að bætt verði í texta greinargerðar að úthlutun lausra lóða skuli vera í samræmi við nýtingarrétt aðila í þjóðlendu og verði háð ákvörðunum sveitarstjórnar að teknu tilliti til þess að innviðir svæðisins þoli þá aukningu sem fylgir frekari uppbyggingu hverju sinni. Nefndin tekur að öðru leyti undir álit Umhverfisstofnunar. Skipulagsnefnd leggur því til að tillagan verði samþykkt með áður greindum atriðum og send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu.
Haraldur Eiríksson kemur aftur til fundar
Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022
Umhverfisstofnun í samráði með sveitarfélaginu ásamt hagsmuna- og rekstraraðilum í Landmannahelli hefur lagt fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Tillagan var augýst frá og með 30.3.2022 til og með 11.5.2022. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Hellismönnum, Umhverfisstofnun, Minjastofnun og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Lögð er fram samantekt athugasemda og viðbrögð nefndarinnar við þeim.
Skipulagsnefnd fjallaði um fram komnar athugasemdir og ábendingar. Nefndin telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd - 18. fundur - 02.11.2023
Sveitarfélagið í samráði með Umhverfisstofnun ásamt hagsmuna- og rekstraraðilum í Landmannahelli hefur lagt fram tillögu að breytingum á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Tillagan var fyrst augýst frá og með 30.3.2022 til og með 11.5.2022. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Hellismönnum, Umhverfisstofnun, Minjastofnun og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, ásamt ábendingum frá Skipulagsstofnun. Samhliða var leitað eftir umsögn Forsætisráðuneytis. Lögð er fram uppfærð tillaga frá Eflu dags. br. 23.10.2023.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að uppfærð tillaga leiði ekki til breytinga á ákvæði um auglýsingu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 38. fundur - 20.02.2025
Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, óskaði á árinu 2020, eftir að gildandi deiliskipulag fyrir Landmannahelli verði endurskoðað í samráði við og með aðkomu sveitarfélagsins. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyrir tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar. Tillagan fór i auglýsingu á árinu 2022 en vegna fram kominna athugasemda varðandi vatnsverndarsvæði kringum vatnsból hefur dregist að halda áfram vinnunni við breytinguna. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 24.1.2025 þar sem búið er að gera viðeigandi breytingar í texta.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði endurauglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 44. fundur - 22.05.2025
Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, óskaði á árinu 2020, eftir að gildandi deiliskipulag fyrir Landmannahelli verði endurskoðað í samráði við og með aðkomu sveitarfélagsins. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyrir tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar. Tillagan fór i auglýsingu á árinu 2022 en vegna fram kominna athugasemda varðandi vatnsverndarsvæði kringum vatnsból hefur dregist að halda áfram vinnunni við breytinguna. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 24.1.2025. Tillagan var auglýst frá og með 28.2.2025 til og með 16.4.2025. Umsagnir bárust frá 6 aðilum og er lögð fram samantekt á umsögnum og drögum að viðbrögðum við þeim.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 18.06.2026
Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, óskaði á árinu 2020, eftir að gildandi deiliskipulag fyrir Landmannahelli verði endurskoðað í samráði við og með aðkomu sveitarfélagsins. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyrir tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu til auglýsingar og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 5. fundur - 20.08.2026
Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, óskaði á árinu 2020, eftir að gildandi deiliskipulag fyrir Landmannahelli verði endurskoðað í samráði við og með aðkomu sveitarfélagsins. Um er að ræða að gera bílastæði sem þörf er á á svæðinu ásamt því að gera áningasvæði við tjaldsvæðið með fræðslu og upplýsingaskiltum um friðlandið og gönguleiðir út frá Landmannahelli. Einnig er ráðgert að gera skipulag á tjaldsvæðinu sjálfu þar sem aðgreint verður svæði fyrir tjöld annars vegar og húsbíla og fellihýsi hinsvegar. Tillaga var auglýst frá og með 26.6.2026 til og með 12.8.2026. Umsagnir bárust frá alls 5 aðilum en ekki var um neinar athugasemdir að ræða. Allar umsagnir má skoða undir máli nr. 846/2026 í skipulagsgátt.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.