Málsnúmer 2101015

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 3. fundur - 04.08.2022

Samráðsferli um skipulag á flugtengdri starfsemi innan Helluflugvallar.
Lagt fram til kynningar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 03.11.2022

Sveitarfélagið í samráði með Isavia og flugklúbbnum á Hellu hefur unnið að gerð deiliskipulags fyrir flugvallarsvæðið. Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi frá Landhönnun þar sem gert er ráð fyrir lóðum undir flugtengda starfsemi.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita formlega heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 8. fundur - 23.11.2022

Deiliskipulag vegna Helluflugvallar
Lögð fram drög að deiliskipulagi vegna Helluflugvallar en sveitarstjórn vísaði afgreiðslu skipulags- og umferðarnefdnar til byggðarráðs til frekari umfjöllunar.

Byggðarráð frestar því að taka afstöðu til málsins þar til kynning meðal íbúa um framtíð flugvallar á Hellu hefur farið fram en kynning fari fram fyrir miðjan febrúar. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og skoða m.a. að láta vinna hljóðmælingu m.t.t. fyrirhugaðrar uppbyggingar. Byggðarráð mun taka málið aftur fyrir á reglulegum byggðarráðsfundi í febrúar.

Samþykkt samhljóða.

Skipulags- og umferðarnefnd - 22. fundur - 04.03.2024

Lögð hefur verið fram tillaga að deiliskipulagi fyrir uppbyggingu á flugvallarsvæðinu á Hellu. Skipulagsgögn frá Landhönnun dags maí 2022. Sveitarstjórn, að undangengnum fundi Byggðaráðs, frestaði afgreiðslu skipulagsferilsins þar sem ákveðið var að framkvæmd yrði hljóðmæling m.t.t. frekari uppbyggingar á flugvellinum. Hljóðmæling liggur nú fyrir frá Mannvit, dags. í nóvember 2023.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fundað verði með hagaðilum um áframhaldandi meðferð málsins.

Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 21.08.2025

Samráðsferli um skipulag á flugtengdri starfsemi innan Helluflugvallar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur sýnd staðsetning henta mun betur en sú fyrri. Nefndin leggur áherslu á að Flugmálafélag Íslands skili til sveitarfélagsins þeim upplýsingum sem þeir voru beðnir um á fundi 24. mars 2025, sem taka eiga á framtíðarsýn flugvallarins á Hellu. Lagt fram til kynningar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 58. fundur - 22.01.2026

Samráðsferli um skipulag á flugtengdri starfsemi innan Helluflugvallar. Lögð er fram greinargerð frá Flugmálafélagi Íslands auk fyrirliggjandi hugmynda um skipulag á svæðinu.
Skipulags- og umferðarnefnd þakkar Flugmálafélagi Íslands fyrir fram lagða greinargerð. Nefndin leggur til að Flugmálafélag Íslands ásamt Isavia skipuleggi og standi fyrir íbúafundi þar sem framtíðar möguleikar svæðisins verði kynntir.