Málsnúmer 2102011
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 35. fundur - 08.02.2021
Fjóla Kristín B. Blandon óskar eftir heimild til að leggja fram deiliskipulag af lóðinni Króktún L164986 þar sem ráðgert er að byggt verði íbúðarhús til búsetu skv. umsókn dags. 4.2.2021.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins.
Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022
Fjóla Kristín B. Blandon hefur fengið heimild til að leggja fram deiliskipulag af lóðinni Króktún L164986, Nátthaga, þar sem ráðgert er að byggt verði íbúðarhús og bílskúr. Lögð er fram tillaga frá Eflu dags. 10.11.2021.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 01.09.2022
Fjóla Kristín B. Blandon hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi af lóðinni Króktún L164986 þar sem ráðgert er að byggt verði íbúðarhús til búsetu skv. umsókn dags. 4.2.2021. Tillagan var auglýst frá og með 20.7.2022 til og með 31.8.2022. Athugasemd barst frá Minjastofnun um að setja þurfi legu minja á uppdrátt. Umhverfisstofnun benti á að skilgreina þurfi mótvægisðagerðir vegna röskunar á vistgerðum.
Skipulagsnefnd fjallaði um fram komnar athugasemdir og ábendingar og telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum. Nefndin leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.