Málsnúmer 2103067
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 33. fundur - 25.03.2021
Yfirlit og minnisblað
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 35. fundur - 10.06.2021
Niðurstaða vinnuhóps um fjallskilamál
Fyrir liggur niðurstaða vinnuhóps um fjallskilamál í Rangárþingi ytra. Lagt er til að hugmyndir vinnuhópsins um endurskoðun á fjallskilakostnaði verði kynntar fyrir fjallskilanefndum áður en til afgreiðslu kemur.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 38. fundur - 09.09.2021
Endurskoðun fjallskilakostnaðar
Tillögur vinnuhóps sveitarfélagsins um fjallskilakostnað hafa verið kynntar í fjallskiladeildum Rangárvalla- og Landmannaafrétta. Ekki komu fram neinar beinar athugasemdir við tillögurnar. Sveitarstjórn leggur því til að kostnaðaráætlun fyrir smölun afréttanna haustið 2021 taki mið að tillögum vinnuhópsins og grunnframlag sveitarfélagins til smölunar verði 1.000.000 kr á afrétt og að upphæð til niðurjöfnunar á hvert lögbýli verði ekki hærri en 8.000 kr. Jafnframt verði lögð fram tillaga á vettvangi Héraðsnefndar um að fjallskilareglugerð Rangárvallasýslu verði tekin til endurskoðunar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 1. fundur - 13.03.2023
Umræða um fjallskilmál á Holtamannaafrétti.
Farið var yfir hugmyndir um að láta reikna út "núll" kostnað við smalamennsku á Holtamannaafrétti.
Samþykkt að fara í þessa vinnu og fela formanni fjallskilanefndar að leiða þá vinnu.
Samþykkt að fara í þessa vinnu og fela formanni fjallskilanefndar að leiða þá vinnu.
Samþykkt samhljóða.