Málsnúmer 2109011
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 42. fundur - 06.09.2021
Rangárþing ytra hefur samþykkt að endurskoða afmörkun vatnsverndarsvæðis fyrir Tvíbytnulæk og Kerauga í ljósi áhrifa sem fyrri afmörkun hafði á nærliggjandi svæði. Óskað var eftir áliti Íslenskra orkurannsókna, ÍSOR, og barst greinargerð frá Daða Þorbjörnssyni jarðfræðingi dags. 1.9.2021 þar sem lögð er fram tillaga að breytingum á fyrri afmörkun eftir nákvæmari skoðun ÍSOR.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu Íslenskra orkurannsókna um breytta afmörkun grannsvæðis á viðkomandi vatnsverndarsvæði. Skipulagsfulltrúa verði falið að gera viðeigandi breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Skipulags- og umferðarnefnd - 43. fundur - 11.10.2021
Við endurskoðun Aðalskipulags Rangárþings ytra 2010-2022 var gerð breyting á afmörkun grannsvæðis vatnsverndar við Tvíbytnulæk og Kerauga eftir rannsóknir og skýrslu ÍSOR-2016/067. Sú breyting skilaði sér ekki inn í gögn/heimasíðu ISOR, sveitarfélags eða til landeigenda. Í ljósi þessa óskaði sveitarfélagið eftir því að ÍSOR endurskoðaði afmörkun grannsvæðis vatnsverndar við Tvíbytnulæk og Kerauga. Lýsing skipulagsáætlunar var kynnt frá og með 21.4.2021 til og með 14.5.2021. Athugasemd barst frá þremur landeigendum úr Litla-Klofa. Lögð er fram tillaga skipulagsáforma frá Eflu dags. 4.10.2021.
Skipulagsnefnd fjallaði um framkomnar ábendingar og athugasemdir sem bárust í kynningu lýsingarinnar og telur að tekið hafi verið tillit til þeirra við gerð tillögunnar. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022
Rangárþing ytra hefur samþykkt að endurskoða afmörkun vatnsverndarsvæðis fyrir Tvíbytnulæk og Kerauga í ljósi áhrifa sem fyrri afmörkun hafði á nærliggjandi svæði. Óskað var eftir áliti Íslenskra orkurannsókna, ÍSOR, og barst greinargerð frá Daða Þorbjörnssyni jarðfræðingi dags. 1.9.2021 þar sem lögð var fram tillaga að breytingum á fyrri afmörkun eftir nákvæmari skoðun ÍSOR. Það álit tók ekki tillit til fyrri samþykkta um byggingarheimildir á svæðinu og var því endurskoðað. Nýtt álit ÍSOR barst 7.3.2022 þar sem búið er að lagfæra mörk grannsvæðis til betri vegar.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun.