Málsnúmer 2111010
Vakta málsnúmerSamráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 2. fundur - 15.11.2021
Ábendingar um lagfæringar á samþykktum og endurskoðun kostnaðar vegna þjónustusamninga.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 45. fundur - 10.03.2022
Tillaga vinnuhóps um endurskoðuðum samstarfssamningum Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Lagt er til að sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykki endurskoðaða útgáfu af samstarfssamningum Rangárþings ytra og Ásahrepps fyrir sitt leyti. Með hinni endurskoðuðu útgáfu hefur jafnframt verið brugðist við þeim ábendingum sem fram komu í bréfi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti dags. 24. ágúst 2020 og er lagt til að samþykktir og þjónustusamningar verði sendir til staðfestingar hjá viðeigandi ráðuneyti og í framhaldinu til birtingar í Stjórnartíðindum. Jafnframt er lagt til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti eftirfarandi tillögu vinnuhópsins að sameiginlegri bókun sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps varðandi fjallskil á Holtamannaafrétti: Samkvæmt 42. gr. laga nr. 6/1986 um afréttamál, fjallskil o. fl. skal fjallskilum í afréttum og öðrum sumarbeitarhöfum jafnað niður á fjallaskilaskylda aðila í hlutfalli við tölu fjallskilaskylds búpenings en heimilt er þó að leggja hluta fjallaskilakostnaðar á landverð eins og þar er ákveðið enda séu um það ákvæði í fjallskilasamþykkt. Í fjallskilasamþykkt Rangárvallasýslu nr. 633/2007segir í 15. gr.: „Sveitarstjórn er heimilt að leggja til fjallaskilasjóðs fjárhæð sem nemur kostnaði við hreinsun afréttarins, miðað við að ekki væri rekið til afréttar.“ Í framhaldinu eru ákvæði um niðurjöfnun þess sem eftir stendur af fjallaskilakostnaðí. Tekjur og gjöld vegna Holtamannaafréttar, þ.m.t. hlutdeild í fjallaskilakostnaði, skiptist á milli sveitarfélaganna í hlutföllunum 4/7 Ásahreppur og 3/7 Rangárþing ytra. Rangárþing ytra lét á árinu 2021 meta hvaða fjárhæðir leiddu af tilvitnuðu ákvæði 15. gr. fjallskilasamþykktarinnar um heimild sveitarfélagsins til að taka þátt í kostnaði við fjallskil á Landmannaafrétti og Rangárvallaafrétti og tók í framhaldi af því ákvörðun um slíkar greiðslur og fyrirkomulag á niðurjöfnun fjallaskila á landverð og eigendur sauðfjár. Sveitarstjórnirnar eru sammála um að sambærileg vinna verði unnin varðandi mat á kostnaði við hreinsun Holtamannaafréttar og hlutdeild Rangárþings ytra við niðurjöfnun kostnaðar við fjallskil á Holtamannaafrétti verði reiknuð í samræmi við niðurlagsákvæði e-liðar 1. gr. þjónustusamningsins frá og með fjárleitum haustið 2022.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 47. fundur - 12.05.2022
Önnur umræða um endurskoðaðar samþykktir og þjónustusamninga.
Lagt er til að sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykki endurskoðaðar samþykktir fyrir Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs, Húsakynni bs, Odda bs og aðra endurskoðaða samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps fyrir sitt leyti.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Oddi bs - 8. fundur - 01.03.2023
Samþykktir fyrir Odda bs.
Lagt fram til kynningar.
Samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 1. fundur - 13.03.2023
Rammasamkomulag um samstarfsverkefni sveitarfélagana og aðrir samningar um samstarfsverkefni.
Rætt var um samstarfssamninga sveitarfélagana.
Lagt til að sveitarstjórnirnar tilnefni tvo fulltrúa hvor í viðræðunefnd um útfærslu samstarfsverkefna.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að sveitarstjórnirnar tilnefni tvo fulltrúa hvor í viðræðunefnd um útfærslu samstarfsverkefna.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.