Málsnúmer 2111023
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 44. fundur - 08.11.2021
Linda B. Gunnlaugsdóttir óskar eftir að fá að leggja fram deiliskipulag af landi sínu, Hallstúni L209741 í samræmi við lýsingu frá Aðalsteini Snorrasyni Arkís, dags. 4.11.2021.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins.
Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 11.04.2022
Linda B. Gunnlaugsdóttir hefur fengið heimild til að leggja fram deiliskipulag af landi sínu, Hallstúni L209741. Lögð er fram tillaga þar sem gerð er grein fyrir byggingu á allt að 150 m² frístundahúsi, 250 m² skemmu / hesthúsi og allt að 20 m² snyrtingu. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Landvegi nr. 26 og um Ölversholtsveg nr. 303.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022
Linda B. Gunnlaugsdóttir hefur fengið heimild til að leggja fram deiliskipulag af landi sínu, Hallstúni L209741. Lögð er fram tillaga þar sem gerð er grein fyrir byggingu á allt að 150 m² frístundahúsi, 250 m² skemmu / hesthúsi og allt að 20 m² snyrtingu. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Landvegi nr. 26 og um Ölversholtsveg nr. 303. Tillagan var auglýst frá og með 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Vegagerðin sendi frá sér athugasemd vegna fjarlægða á milli tenginga við Ölversholtsveg
Skipulagsnefnd fjallaði um fram komnar athugasemdir og ábendingar. Nefndin telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu.