Málsnúmer 2112031

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 43. fundur - 13.01.2022

Frágangur sorpurðunar í landi Varmadals á árum áður.
Sveitarstjóra falið að taka saman gögn um málið og leggja fyrir sveitarstjórn á marsfundi.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 45. fundur - 10.03.2022

Minnisblað um erindið.
Lagt fram minnisblað varðandi erindið. Erindi Jóseps má skipta í tvo liði. Annars vegar varðandi afmörkun markagirðingar milli Varmadals og svæðis Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og Strandar og hins vegar varðandi sorpurðun á sínum tíma í vestanverðu landi Varmadals. Hvað varðar fyrri liðinn þá tekur sveitarstjórn Rangárþings ytra undir að lagfæra þurfi markagirðinguna á milli Varmadals og Strandar þ.m.t. lands Sorpstöðvar Rangárvallasýslu þar sem hún víkur aðeins frá þeirri beinu línu sem lýst er í landamerkjalýsingum. Þar sem jafnframt er kominn tími á endurnýjun girðingarinnar er lag að færa þetta til betri vegar. Lagt er til að gengið verði í þetta mál hið fyrsta í samráði við landeigendur í Varmadal og Sorspstöð Rangárvallasýslu. Hvað varðar seinni lið erindis Jóseps um urðun sorps í vestanverðu landi Varmadals þá leggur sveitarstjórn til að farið verði að ráðum sérfræðinga Umhverfisstofnunar, líkt og fram kemur í minnisblaðinu, og sett af stað mengunarvöktun frá svæðinu sem fyrsta skref. Þessi tillaga verði borin undir landeigendur í Varmadal á þeim forsendum að sveitarfélagið muni kosta þá vöktun.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 47. fundur - 12.05.2022

Svar við bréfi vegna sorpurðunar.
Lagt fram bréf frá landeigendum Varmadals dagsett 5. maí 2022. Sveitarstjórn leggur til að næsta skref í málinu verði að bjóða landeigendum til fundar þar sem farið yrði betur yfir sjónarmið landeigenda og sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 13. fundur - 26.04.2023

Lagt fram minnisblað frá Lögmannsstofunni Lex sem unnið var fyrir sveitarfélagið varðandi landamerki milli Varmadals og Strandar.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að kynna eigendum Varmadals niðurstöðuna.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 46. fundur - 10.09.2025

Lagt fram erindi frá Jósepi Benediktssyni varðandi formlegt samkomulag og skilgreiningu á ábyrgð á frágangi á sorpi sem sveitarfélagið urðaði á sínum tíma í landi Varmadals við Torfærugil. Þá er jafnframt kvartað yfir losun og foki á sorpi frá Sorpstöð Rangárvallasýslu á Strönd yfir á land Varmadals.

Lagt er til að fela oddvitum listanna og sveitarstjóra að funda með landeigendum Varmadals til að ræða lausnir varðandi eldra urðunarsvæði í landi Varmadals.

Þá er lagt til að kvörtun vegna fok á sorpi frá Strönd verði vísar til stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu til umfjöllunar og afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 250. fundur - 13.10.2025

Lagt fram erindi frá Jósepi Benediktssyni þar sem kvartað er yfir losun og foki á sorpi frá Sorpstöð Rangárvallasýslu á Strönd yfir á land Varmadals og bókun sveitarstjórnar Rangárþings ytra varðandi málið.

Stjórn felur framkvæmdastjóra að láta hreinsa upp rusl sem fokið hefur á land Varmadals.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 45. fundur - 28.01.2026

Lagt fram erindi frá eigendum Varmadals um tillögur að úrlausn vegna urðunar í landi Varmadals.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 47. fundur - 25.03.2026

Lagt fram svar lögmanns landeiganda Varmadals við svari sveitarfélagsins.

Lagt til að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.


Byggðarráð Rangárþings ytra - 48. fundur - 29.04.2026

Farið var yfir fund með lögmönnum landeiganda og sveitarfélagsins.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.