Málsnúmer 2203002

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 48. fundur - 07.03.2022

Landeigendur óska eftir að fá að leggja fram deiliskipulag af íbúðarlóð á jörð sinni. Á lóðinni eru áform um fasta búsetu. Framlögð lýsing og fyrirspurn frá Eflu dags. 3.3.2022.
Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til deiliskipulagsgerðar. Nefndin telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulagsins hvað varðar landnotkun en bendir á að sökum mikillar fjarlægðar frá stofnvegi geti reynst erfitt að þjónusta viðkomandi lóð. Nefndin telur þó fyrirséð að í framtíðinni muni styttast verulega í frekari uppbyggingu á svæðinu og því sé fjarlægð frá stofnvegi ekki til þess fallin að stöðva framgang tiltekinna áforma.

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022

Landeigendur hafa fengið heimild til að leggja fram deiliskipulag af íbúðarlóð á jörð sinni. Innan lóðarinnar er heimilt að byggja íbúðarhús, bílskúr, skemmu og gestahús til samræmis við meðfylgjandi tillögu frá Eflu dags. 31.5.2022.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 01.09.2022

Landeigendur hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi af íbúðarlóðum á jörð sinni. Á lóðunum eru áform um fasta búsetu. Framlögð lýsing og fyrirspurn frá Eflu dags. 3.3.2022. Tillagan var auglýst frá og með 20.7.2022 til og með 31.8.2022.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.