Málsnúmer 2203105
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 11.04.2022
Sveitarfélagið í samvinnu með lóðarhöfum frá Árbyrgi að Heiðarbrún með báðum meðtöldum hafa sameinast um gerð deiliskipulags fyrir íbúðasvæði austan Árbæjarvegar. Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins var auglýst í B-deild stjórnartíðinda 22.12.2021. Skipulagið tekur til 16 lóða og í gildi eru þrjú deiliskipulög á svæðinu frá árunum 2011 til 2021 og verða þau felld úr gildi við gildistöku þessa skipulags. Greinargerð og uppdráttur frá Eflu dags. 29.3.2022.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Öllum lóðarhöfum á svæðinu verði jafnframt send tillagan til yfirferðar í upphafi auglýsingartíma. Óskað verði jafnframt eftir undanþágu frá grein 5.3.2.5, lið "d" í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar milli bygginga og vega en nefndin telur ómögulegt að byggja upp umræddar lóðir nema til komi slík undanþága. Undanþága liggur fyrir nú þegar á nokkrum lóðanna á svæðinu.
Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022
Sveitarfélagið í samvinnu með lóðarhöfum frá Árbyrgi að Heiðarbrún með báðum meðtöldum hafa sameinast um gerð deiliskipulags fyrir íbúðasvæði austan Árbæjarvegar. Skipulagið tekur til 17 lóða og í gildi eru þrjú deiliskipulög á svæðinu frá árunum 2011 til 2021 og verða þau felld úr gildi við gildistöku þessa skipulags. Óskað hefur verið eftir undanþágu til Innviðaráðuneytisins frá grein 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar milli bygginga og vega. Tillagan hefur verið send til grenndarkynningar til allra lóðarhafa á svæðinu og jafnframt auglýst frá og með 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Ábending barst frá landeiganda um breytingar á innkeyrslu að lóðum, beiðni annars landeiganda barst um fjölgun lóða úr sínu landi, staðfesting frá ráðuneyti barst 1.6.2022.
Skipulagsnefnd fjallaði um fram komnar athugasemdir og ábendingar. Nefndin telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd - 7. fundur - 01.12.2022
Sveitarfélagið í samvinnu með lóðarhöfum frá Árbyrgi að Heiðarbrún með báðum meðtöldum hafa sameinast um gerð deiliskipulags fyrir íbúðasvæði austan Árbæjarvegar. Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins var auglýst í B-deild stjórnartíðinda 22.12.2021. Skipulagið tekur til 17 lóða og í gildi eru þrjú deiliskipulög á svæðinu frá árunum 2011 til 2021 og verða þau felld úr gildi við gildistöku þessa skipulags. Óskað hefur verið eftir undanþágu til Innviðaráðuneytisins frá grein 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar milli bygginga og vega. Tillagan hefur verið send til grenndarkynningar til allra lóðarhafa á svæðinu og jafnframt auglýst frá og með 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Ábending barst frá landeiganda um breytingar á innkeyrslu að lóðum, beiðni annars landeiganda barst um fjölgun lóða úr sínu landi, staðfesting frá ráðuneyti barst 1.6.2022. Lögð er fram uppfærð greinargerð frá Eflu dags.15.6.2022 eftir ábendingar frá umsagnaraðilum.
Skipulagsnefnd fjallaði um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Nefndin telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd - 13. fundur - 01.06.2023
Sveitarfélagið í samvinnu með lóðarhöfum frá Árbyrgi að Heiðarbrún með báðum meðtöldum hafa sameinast um gerð deiliskipulags fyrir íbúðasvæði austan Árbæjarvegar. Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins var auglýst í B-deild stjórnartíðinda 22.12.2021. Skipulagið tekur til 17 lóða og í gildi eru þrjú deiliskipulög á svæðinu frá árunum 2011 til 2021 og verða þau felld úr gildi við gildistöku þessa skipulags. Óskað hefur verið eftir undanþágu til Innviðaráðuneytisins frá grein 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar milli bygginga og vega. Tillagan hefur verið send til grenndarkynningar til allra lóðarhafa á svæðinu og jafnframt auglýst frá og með 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Ábending barst frá landeiganda um breytingar á innkeyrslu að lóðum, beiðni annars landeiganda barst um fjölgun lóða úr sínu landi, staðfesting frá ráðuneyti barst 1.6.2022. Lögð er fram uppfærð greinargerð frá Eflu dags.15.6.2022 eftir ábendingar frá umsagnaraðilum. Ábending barst frá Skipulagsstofnun vegna fjölda lóða.
Skipulagsnefnd fjallaði um fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Skipulags- og umferðarnefnd - 18. fundur - 02.11.2023
Sveitarfélagið í samvinnu með lóðarhöfum frá Árbyrgi að Heiðarbrún með báðum meðtöldum hafa sameinast um gerð deiliskipulags fyrir íbúðasvæði austan Árbæjarvegar. Skipulagið tekur til 17 lóða og í gildi eru þrjú deiliskipulög á svæðinu frá árunum 2011 til 2021 og verða þau felld úr gildi við gildistöku þessa skipulags. Undanþága frá grein 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar milli bygginga og vega liggur fyrir frá Innviðaráðuneytinu. Tillagan hefur verið send til grenndarkynningar til allra lóðarhafa á svæðinu og jafnframt auglýst frá og með 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Ábending barst frá landeiganda um breytingar á innkeyrslu að lóðum, beiðni annars landeiganda barst um fjölgun lóða úr sínu landi. Ábending barst frá Skipulagsstofnun vegna fjölda lóða og skilgreiningu þeirra. Breyting á aðalskipulagi þar sem gerð var breyting á skilgreiningu lóða hefur tekið gildi með auglýsingu í B-deild. Lögð er fram uppfærð greinargerð frá Eflu dags.19.6.2023.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan yrði endurauglýst vegna ákvæða um tímamörk í skipulagslögum. Þær umsagnir sem bárust við fyrri auglýsingu skuli gilda áfram nema umsagnaraðilar óski annars.
Skipulags- og umferðarnefnd - 20. fundur - 03.01.2024
Sveitarfélagið í samvinnu með lóðarhöfum frá Árbyrgi að Heiðarbrún með báðum meðtöldum hafa sameinast um gerð deiliskipulags fyrir íbúðasvæði austan Árbæjarvegar. Skipulagið tekur til 17 lóða og í gildi eru þrjú deiliskipulög á svæðinu frá árunum 2011 til 2021 og verða þau felld úr gildi við gildistöku þessa skipulags. Undanþága frá grein 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar milli bygginga og vega liggur fyrir frá Innviðaráðuneytinu. Tillagan hefur verið send til grenndarkynningar til allra lóðarhafa á svæðinu og jafnframt auglýst frá og með 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Ábending barst frá landeiganda um breytingar á innkeyrslu að lóðum, beiðni annars landeiganda barst um fjölgun lóða úr sínu landi. Ábending barst frá Skipulagsstofnun vegna fjölda lóða og skilgreiningu þeirra. Breyting á aðalskipulagi þar sem gerð var breyting á skilgreiningu lóða hefur tekið gildi með auglýsingu í B-deild. Tillagan var endurauglýst frá og með 16.11.2023 til og með 28.12.2023. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Rarik og Mílu sem gerðu engar athugasemdir, frá Umhverfisstofnun sem taldi ekki þörf á umsögn, frá Vegagerðinni sem taldi of stutt á milli vegtenginga milli Heiðarbóls og lóða Heiðarbrúnar II.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.