Málsnúmer 2205007

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 50. fundur - 09.05.2022

Eigandi Hrafnhólma og Hrafntófta 3 óskar eftir að fá að leggja fram deiliskipulag af lóðunum. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, bílskúrs, gestahúss og skemmu á hvorri lóð skv. skipulagsgögnum frá Eflu dags. 4.5.2022.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022

Eigandi Hrafnhólma og Hrafntófta 3 hefur lagt fram deiliskipulag af lóðunum. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, gestahúss og skemmu á hvorri lóð skv. skipulagsgögnum frá Eflu dags. 4.5.2022. Tillagan var auglýst frá og með 18.5.2022 til og með 29. júní sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 01.09.2022

Eigandi Hrafnhólma og Hrafntófta 3 hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi af lóðunum. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, gestahúss og skemmu á hvorri lóð skv. skipulagsgögnum frá Eflu dags. 4.5.2022. Álit skipulagsstofnunar barst með bréfi dags, 15.8.2022 þar sem gerðar eru smávægilegar athugasemdir við texta greinargerðar. Óska þarf jafnframt eftir undanþágu frá ákvæði gr. 5.3.2.5 skipulagsreglugerðar um fjarlægð byggingar frá vegi.
Skipulagsnefnd telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Skipulagsnefnd leggur til að ekki verði gerðar athugasemdir við veitingu undanþágu gagnvart fjarlægð milli bygginga og vegar.

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 03.11.2022

Eigandi Hrafnhólma og Hrafntófta 3 hefur lagt fram deiliskipulag af lóðunum. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, gestahúss og skemmu á hvorri lóð skv. skipulagsgögnum frá Eflu dags. 4.5.2022. Í lokaafgreiðslu skipulagsstofnunar kom fram að leita skuli eftir undanþágu frá ráðuneyti frá grein 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægða milli bygginga og vega.
Staða verkefnisins lögð fram til kynningar þar sem afstaða ráðuneytis liggur ekki fyrir.

Skipulags- og umferðarnefnd - 10. fundur - 02.03.2023

Eigandi Hrafnhólma og Hrafntófta 3 hefur lagt fram deiliskipulag af lóðunum. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, gestahúss og skemmu á hvorri lóð skv. skipulagsgögnum frá Eflu dags. 4.5.2022. Í lokaafgreiðslu skipulagsstofnunar kom fram að leita skuli eftir undanþágu frá ráðuneyti frá grein 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð vegna fjarlægða milli bygginga og vega. Niðurstaða liggur nú fyrir frá Innviðaráðuneyti þar sem fallist er á að undanþága verði veitt frá ofangreindu ákvæði.
Skipulagsnefnd telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu.