Málsnúmer 2205057
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022
Eigendur Ægissíðu 1, L165451, óska eftir heimild til að leggja fram deiliskipulag fyrir land sitt. Gert verði ráð fyrir tveimur lóðum með heimild til byggingar á íbúðarhús, skemmu/hesthúsi og gestahúsi á hvorri lóð í samræmi við framlagða tillögu frá Helga Kjartanssyni dags. 9.5.2022.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 01.09.2022
Eigendur Ægissíðu 1, L165451, hafa lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt. Gert verði ráð fyrir tveimur lóðum með heimild til byggingar á íbúðarhúsum, skemmu/hesthúsi og gestahúsi á hvorri lóð í samræmi við skipulagsgögn frá Helga Kjartanssyni dags. 9.5.2022. Tillagan var auglýst frá og með 20.7.2022 til og með 31.8.2022.
Skipulagsnefnd telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.