Málsnúmer 2206031

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022

Elísabet Guðbjörnsdóttir frá Ljósleiðaranum ehf óskar eftir framkvæmdaleyfi til lagningar ljósleiðara frá Þjórsá í vestri að Hólsá í austri. Tillaga að lagnaleið lögð fram. Bréf frá Fjarskiptastofu lagt fram þar sem stofnunin leggur áherslu á mikilvægi umræddrar framkvæmdar.
Afgreiðslu um framkvæmdaleyfi er frestað þar sem frestur landeigenda til athugasemda í samráðsferli er til 15. júli.

Skipulags- og umferðarnefnd - 5. fundur - 06.10.2022

Elísabet Guðbjörnsdóttir frá Ljósleiðaranum ehf hefur óskað eftir framkvæmdaleyfi til lagningar ljósleiðara frá Þjórsá í vestri að Hólsá í austri. Afgreiðslu var frestað á síðasta fundi Byggðaráðs. Farið yfir stöðu málsins.
Farið var yfir stöðu málsins.

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 03.11.2022

Elísabet Guðbjörnsdóttir frá Ljósleiðaranum ehf óskar eftir framkvæmdaleyfi til lagningar ljósleiðara frá Þjórsá í vestri að Hólsá í austri. Tillaga að lagnaleið lögð fram. Bréf frá Fjarskiptastofu lagt fram þar sem stofnunin leggur áherslu á mikilvægi umræddrar framkvæmdar. Fjölamrgar athugasemdir bárust frá landeigendum í lagnaleiðinni sem varð til þess að óskað var eftir áliti Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Álit nefndarinnar er hér lagt fram en niðurstaða nefndarinnar er að umrædd framkvæmd skuli ekki háð framkvæmdaleyfi sveitarfélagsins.
Með bréfi dags. 30. september sl. óskaði sveitarstjórn Rangárþings ytra eftir því að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála úrskurðaði um hvort fyrirhuguð lagning ljósleiðara frá Þjórsá að Hólsá væri háð framkvæmdaleyfi.
Hjá úrskurðarnefndinni fékk málið málsnúmerið 110/2022. Þann 20. október sl. kvað nefndin upp úrskurð í máli nr. 110/2022, þar sem úrskurðarorð er svohljóðandi: „Fyrirhuguð lagning ljósleiðara frá Þjórsá að Hólsá í Rangárþingi ytra er ekki háð framkvæmdaleyfi.“
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 110/2022 er lagður fram.