Málsnúmer 2206059

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022

Efla fyrir hönd Þjótanda ehf sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr svokölluðu Tröllkonugili. Um er að ræða möl og sand allt að 50.000 m³ og er í samræmi við skilmála í aðalskipulagi fyrir svæðið. Umsókn send 24.5.2022.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimild verði veitt fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda innan aðalskipulags Rangárþings ytra þar sem skilgreind er efnistaka á umræddu svæði. Niðurstaða nefndarinnar er að umrædd efnistaka sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.