Málsnúmer 2207039
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 3. fundur - 04.08.2022
Eigendur Heiðarlanda úr Galtalæk 2 óska eftir að fá að skipta úr landi sínu 3800 m² spildu sem á að sameinast lóðinni Básabraut 11. Básabraut 11 er 8205 m² en verður 12.004 m² eftir samrunann og er í samræmi við uppdrátt frá Landnotum dags. 7.6.2022. Jörðin Galtalækur 2 minnkar sem útskiptum nemur og verður 75,7 ha eftir skiptin.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti.