Málsnúmer 2208039

Vakta málsnúmer

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 1. fundur - 15.08.2022

Verkefnið kynnt og næstu skref ákveðin.
Farið yfir verkefnið. Formanni falið að óska eftir tilnefningum í stýrihóp.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 2. fundur - 23.09.2022

Stofnum hóps um heilsueflandi samfélag 2022 - 2026.
Nanna Jónsdóttir Aðalmaður fyrir hönd íþróttafélaga.
Þorsteinn Darri Sigurgeirsson til vara.
Jón Ragnar Björnsson, Aðalmaður Öldungarráðs.
Þorsteinn Ó. Markusson, til vara.
Erla Sigríður Sigurðardóttir Aðalmaður sveitastjórnar.
Sóley Margeirsdóttir til vara.
Ingvar Pétur Guðbjörnsson, Aðalmaður Odda.
Eggert Valur Guðmundsson til vara.
Ungmennaráð tilnefnir fulltrúa þegar sá hópur kemur saman.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 4. fundur - 21.11.2022

Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd verði falið að gera tillögur að bættri samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs í sveitarfélaginu. Hópurinn vinni náið með skólastjórnendum og fulltrúum íþrótta- og tómstundafélaga. Samhliða verði skoðað með hvaða hætti megi nýta íþróttamannvirki sveitarfélagsins sem best sem og að koma upp akstri á milli skólasvæða eftir að skóla lýkur til að samþættingin nái tilætluðum árangri. Hópurinn skili tillögum og kostnaðargreiningum til sveitarstjórnar fyrir árslok.
Óskað verður eftir að funda með skólastjórum Laugalandsskóla í Holtum og Helluskóla sem fyrst og mun þau fá fundaboð frá starfmanni nefndarinnar á næstunni. Fundur mun fjalla um samþættingu skólana og möguleikar á samræmingu stundartaflna sem er grunnforsenda fyrir því að koma á bættri samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs í sveitarfélaginu.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 8. fundur - 11.09.2023

Kynning á verkefninu Heilsueflandi Rangárþing sem er samstarfsverkefni alla sveitarfélaga í Rangárþingi og kynningardaginn sem haldinn verður þriðjudaginn 19 september.
Ragnar kynnir málið og nefndin alsæl.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 12. fundur - 07.03.2024

Þáttaka i fyrirlestrum tengt verkefninu "Heilsueflandi Rangárvallasýsla" og "Vertu Úlfur", "Fræðsla um grindarbotn".
Nefndin samþykkir að taka þátt í þessum fyrirlestrum tengdum "Heilsueflandi Rangárvallasýsla".

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 15. fundur - 06.06.2024

Staða heislueflandi samfélags verkefnis, skólahreysti ofl



Verkefnisstjóri íþrótta og fjölmenningarmála fór yfir stöðu heilsueflandi samfélags verkefnisins og næstu skref rædd. Sagði frá heimsókn á Landlæknisembættið og skólahreysti þar sem báðir skólar RY voru í úrslitum og Laugalandsskóli landaði 3. sæti. Bolir voru framleiddir með merkjum skólana í litum sem voru úthlutaðir. Óskum báðum grunnskólunum til hamingju með frábæran árangur í Skólahreysti.
Ákveðið var að fela verkefnisstjóra íþrótta og fjölmenningarmála að hafa samtal við nefndina að leiða verkefnið þvert á samfélagið.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 16. fundur - 05.09.2024

Hugmynd frá íbúa - hugleiðsla fyrir ófrískar konur - mindfulness for pregnant women
Farið var yfir hugmynd íbúa að hugleiðslu fyrir ófrískar konur. Umsókn í menningarsjóð og beiðni um styrk til kaupa á búnaði, kubbadýnur og yoga kodda og leigu á safnaðarheimili: 258.600kr

Nefndin tók hugmyndina til skoðunar en vísar málinu frá.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 16. fundur - 05.09.2024

Hjólagarður og hundagarður - hugmynd frá íbúa.
Farið var yfir tillögur frá íbúa varðandi hjólagarð og hundagarð.

Nefndinni leist vel á hugmyndirnar og vísar málinu til sveitastjórnar til nánari skoðunar.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 16. fundur - 05.09.2024

Heilsu- og íþróttavika 23. september - 30. september 2024.
Verkefnisstjóri íþrótta- og fjölmenningamála fór yfir aðdraganda iþróttaviku, 500.000kr styrks sem var úthlutað og dagskránna sem er í þróun. Samvinna við RE vegna þessarar viku var einnig rædd. Íþróttavikan endar á 40. ára afmælishátíð sundlaugarinnar laugardaginn 22. september.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 16. fundur - 05.09.2024

Val í ráð heilsueflandi samfélags. Staða verkefnis og framtíð.
Skólar og leikskólar hafa verið hvattir til að sækja um í að verða Heilsueflandi, gulur september er hafinn og allar stofnanir komnar með veggspjöld til að styðja við það og verið sendur póstur til stuðnings um hvernig hægt sé að taka þátt og styðja við. Gulur september er til að auka meðvitund um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Guli dagurinn er 10. sept.
Eins hafa verið pantaðir fánar, standar og veggspjöld sem styðja við heilsueflandi samfélag og var farið í gegnum efnið.

Að tillögu verkefnisstjóra íþrótta- og fjölmenningarmála verður stýrihópur heilsueflandi samfélags með 3 meðlimi. Sá hópur verður svo studdur af stærri samráðsvettvangi.

Listinn verður birtur eftir næsta fund nefndarinnar.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 17. fundur - 07.11.2024

Val í stýrihóp heilsueflandi samfélags.

Tillaga verkefnisstjóra íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa, er eftirfarandi:
Ástþór Jón Ragnheiðarsson
Eydís Hrönn Tómasdóttir
Karen Eva Sigurðardóttir
Nefndin samþykkir þessa einstaklinga og ákveðið er að taka stöðuna á starfi hópsins í apríl 2025.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 32. fundur - 27.11.2024

Lagðar fram upplýsingar frá verkefnisstjóra íþrótta- og fjölmenningarmála um tillögu að skipa þriggja manna stýrihóp um heilsueflandi samfélag sem var unnin eftir ráðleggingu verkefnastjóra Landlæknisembættisins.

Byggðarráð samþykkir tillöguna og taki við af núverandi stýrihóp um heilsueflandi samfélag. Óskað er eftir því að gerð verkefnalýsing fyrir hópinn.

Samþykkt samhljóða.

Heilsueflandi samfélag - 1. fundur - 02.01.2025

Fyrsti fundur nýs stýrihóps heilsueflandi samfélags. Kynning á verkefninu heilsueflandi samfélag.
Stýrihópurinn hittist ásamt sveitastjóra og ræddi verkefnið og kynntist. Íþrótta og fjölmenningarfulltrúi kynnti verkefnið og renndi í gegnum Heilsueflandi samfélag á vef landlæknisembættis og renndi yfir skýrslu skilgreining hlutverks stýrihóps sem var gerð fyrir sveitastjórn. Fyrir næsta fund var ákveðið að allir myndu taka saman það sem vel er gert í samfélaginu fyrir heilsueflandi og renna yfir það á næsta fundi.

Heilsueflandi samfélag - 2. fundur - 05.03.2025

Rennt verður í gengum hvað vel er gert í samfélaginu varðandi heilsueflandi samfélag.
Rennt var í gengum hvað vel er gert í samfélaginu varðandi heilsueflandi samfélag.

Stýrihópurinn ræddi eftirfarandi:
Febrang og þeirra góða starf - Starfið á vorönn 2024 ? FEBRANG
Leikfimi hjá Drífu - greitt af sveitarfélagi
Fjölbreytt starf hjá íþróttafélögunum
Gönguleiðir í sveitarfélaginu/ferðafélagið
Félagsmiðstöðin
Aðstaða - 3 íþróttahús, 2 sundlaugar, reiðhöll, úti svæði
Mömmuleikfimi hjá Drífu
Fjöbreytt úrval námskeiða fyrir fullorðna eins og 3 tegundir jóga, zumba, oldboys fótbolti, körfubolti, hópatímar og fleira.
Frístundastyrkur
Gönguskíðabraut
Nuddstofur/sjúkraþjálfun/tannlæknir/heilsugæsla/Talþjálfun
Fyrirlestrar á vegum foreldrafélaga/skóla/sveitarfélags
gott bókasöfn
reglulegir prjónahittingar
worldclass
Flubbó
motorcrossbrautin
Aldamótaskógsverkefni
Geysir - Hestaleikfimi, ýmislegt annað
Liðveisla félagsþjónustunnar
Viss - þeirra starf. Akstur á milli
Kórastarf - þeirra starf
Kvennfélögin - þeirra starf
Lionsklúbbur
Golfklúbburinn
Foreldramorgnarnir - Safnaðarheimil
Leikskólafjör í íþrhús Hellu
Boltakvöld Þykkvabæ
Sund fyrir elsta hóp í leikskólum

Á næsta fundi verður rætt það sem bæta má í samfélaginu varðandi heilsueflandi mál.

Heilsueflandi samfélag - 3. fundur - 16.04.2025

Hvað má betur fara/gera í samfélaginu varðandi heilsueflandi, hugmyndavinna.
Hvað má betur fara/gera í samfélaginu varðandi heilsueflandi, hugmyndavinna.

Rætt var um hluti sem betur mega fara og má bæta:

Frístunda aðstaða - má finna stað fyrir frístundastarf.

Félagsmiðstöðin. Betra utanumhald við yngri hópinn, annað hvort eru þau í féló eða ekki. Kynna fyrir foreldrum. Setja betri upplýsingar á RY.is

Betri nýting á íþróttamannvirkjum í Þykkvabæ - td færa eldriborgaraleikfimi í íþróttahúsið í þykkvabæ.

Félagsmiðstöðin - aðstaða og umhverfi

Viðhald á útileiktækjum og völlum

Hjólarampur - viðhald - hætta fyrir börn

Leiktæki/leikvellir - mætti fjölga á Hellusvæðinu og Þykkvabæ og Laugaland

Túnið á bak við villt og alið - nýta fyrir leikvöll og samkomutún.

Heilbrigðiseftirlit - viðhald og umgengni Skýrsla (viðhengi). Eftirfylgni.

Öryggisatriði í íþróttahúsum og sundlaugum.

worldclass. Frábær stöð, set spurningamerki við þjónustuleysi hér vs aðrar stöðvar en sama verð greitt!

Motorcrossbrautin. Græða betur upp svæði sem ekki er keyrt á vegna sandfoks. Fara yfir og einfalda reglur brautarinnar svo fleiri geti nýtt sér hana. Sveiganlegri opnun ofl.

Geysir - Hestaleikfimi, ýmislegt annað. Leiðinlegt að sjá vellina okkar grotna niður sérstaklega ármegin. Landsmótshald í húfi svo mikilvægt að halda vel við.

Klúbba og frístundastarf, (td. Lions, kórar ofl) gera allt þetta sýnilegra

Leikskólalóð sem leiksvæði fyrir börn og fullorðna þegar leikskólinn flytur.

Göngustígar - má fegra og bæta.

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 21. fundur - 07.05.2025

Fundagerð stýrihóps Heilsueflandi samfélags til kynningar.
Fundagerð stýrihóps Heilsueflandi samfélags var kynnt fyrir nefndinni.

Heilsueflandi samfélag - 4. fundur - 19.11.2025

Annað sem þarf að ræða.
Staðfest var að byrja á gátlistum frá Landlækni á næsta fundi.

Heilsueflandi samfélag - 5. fundur - 29.04.2026

Farið verður yfir gátlista og framhaldið skipulagt.
Hópurinn fór yfir ýmis mál og fyllti út fyrsta gátlista "Viðmið fyrir vellíðan með hollu mataræði"

Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 2. fundur - 05.08.2026

Skipun stýrihóps Heilsueflandi samfélags 2026-2030.
Tillaga Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa er að skipun stýrihóps Heilsueflandi samfélags 2026-2030 haldi áfram með sama hætti. Einnig er lagt til að sömu aðilar haldi áfram enda hefur stýrihópurinn aðeins verið við störf í rúmt eitt og hálft ár.
Nefndin felur Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa að ræða við viðkomandi aðila um áframhaldandi setu í hópnum.