Málsnúmer 2209033
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 4. fundur - 14.09.2022
Fulltrúar D-lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Rangárþings ytra leggja til að hafist verði handa við þarfagreiningu á búsetuúrræðum fatlaðra í sveitarfélaginu með það að markmiði að tryggja til framtíðar viðunandi húsnæði fyrir þá íbúa sveitarfélagsins. Greinargerð verði skilað til sveitarstjórnar fyrir áramót.
Samþykkt samhljóða.
Bókun Á-lista:
Á 3. fundi sveitarstjórnar 10. ágúst s.l. var rammasamningur um aukið íbúðaframboð 2023-2032 kynntur og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram. Í þessum samningi er m.a. kveðið á um þarfagreiningu á búsetuúrræðum fatlaðra og því málið þegar komið í vinnslu.