Málsnúmer 2211008

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 101. fundur - 08.11.2023

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Rangárþings ytra um leyfi til að byggja um 2700 m² viðbyggingu við grunnskólann sem tekur yfir grunnskólastofur, aðstöðu grunnskóla- og leikskólakennara og starfsfólks og sameiginlega aðstöðu annarra deilda. Jafnframt er um að ræða aðstöðu undir bókasafn og tónlistarskóla. Lagðir eru fram séruppdrættir til yfirferðar en yfirferð aðaluppdrátta er lokið.
Séruppdrættir yfirfarnir og samþykktir. Hitalagnir, Loftræstilagnir, vatnslagnir, vatnsúðakerfi, fráveita og neysluvatnslagnir teknir til skoðunar og yfirferðar.

Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Staðfesting frá Vatnsveitu vegna vatnsúðakerfis.
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 176. fundur - 15.04.2026

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Rangárþings ytra um leyfi til að byggja um 2700 m² viðbyggingu við grunnskólann sem tekur yfir grunnskólastofur, aðstöðu grunnskóla- og leiksólakennara og starfsfólks og sameiginlega aðstöðu annarra deilda. jafnframt er um að ræða aðstaða undir bókasafn og tónlistarskóla. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust 10.4.2026
Framlagðir uppfærðir aðaluppdrættir lagðir fram til afgreiðslu.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppfærða aðaluppdrætti.